Fótbolti

Innlit hjá Ísak: „Ef þú ert ekki góð manneskja ertu ekki neitt“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ísak hefur leikið fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands.
Ísak hefur leikið fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands. GETTY/ALEX GRIMM

Í tengslum við útsendingu Dplay Sport frá leik Norrköping og Örebro í sænsku úrvalsdeildinni í gær var sýnt innslag um Ísak Bergmann Jóhannesson.

Þessi sautján ára Skagamaður hefur slegið í gegn með Norrköping á tímabilinu. Þrátt fyrir ungan aldur er hann fastamaður í byrjunarliði Norrköping sem er með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar. Norrköping vann 2-0 sigur á Örebro í gær.

Fréttamaður Dplay kíkti í heimsókn til Ísaks á dögunum og tók púlsinn á þessum efnilega leikmanni. Skagamaðurinn hefur búið í eitt og hálft ár í Norrköping og kann vel við sig í þessari mátulega stóru borg eins og hann orðar það í viðtalinu sem fer allt fram á sænsku.

Það fyrsta sem tekur á móti manni í íbúð Ísaks er mynd af heimabæ hans, Akranesi. „Þegar maður saknar heimabæjarins getur maður kíkt á myndina. Þetta er uppáhalds myndin mín í íbúðinni,“ sagði Ísak og bætti við að hann gæti hugsað sér að búa á Akranesi þegar ferlinum lýkur. Hann hefur þó nægan tíma til að ákveða það.

Fjölmargar myndir af fótboltamönnum er að finna í íbúð Ísaks. Uppáhalds leikmaðurinn hans er Kevin De Bruyne, belgíski miðjumaðurinn hjá Manchester City.

„Þetta er uppáhaldsleikmaðurinn minn. Ég er hrifinn af því hvernig hann spilar og hvernig hann er á vellinum. Hann er mjög rólegur. Hann lítur líka út fyrir að vera góð manneskja,“ sagði Ísak.

Í innslagi Dplay ræðir Ísak einnig um fjölskylduna og mikilvægi þess að vera auðmjúkur og með báða fætur á jörðinni. „Ef maður er ekki góð manneskja er maður ekki neitt,“ sagði Ísak sem gerir allt til að ná sem lengst.

„Ég borða ekkert óhollt, eða ég vil ekki borða óhollt. Strákarnir geta hlegið aðeins að mér en ég vil ná gera þetta eina prósent auka til að verða eins góður og ég get,“ sagði Ísak sem hefur alltaf undirbúið sig af kostgæfni fyrir leiki.

„Þegar ég var tólf ára var alltaf einhver frekar óhollur matur á fimmtudögum. Þá sagði ég við strákana sem voru með mér í liði: af hverju eruð þið að borða þetta, við eigum að spila um helgina. Þeir hlógu og sögðu mér að slaka á. Ég sagði nei, ég ætla að verða eins góður og ég get í leiknum. Þá var ég tólf ára og það eru ekki margir sem hugsa þannig á þeim aldri.“

Ísak ætlar sér alla leið í fótboltanum. „Ég ætla ekki að láta stoppa mig í því að verða fótboltamaður á hæsta getustigi. Ég hef trú á sjálfum mér og ef maður hugsar út í hverju maður getur stjórnað sjálfur þá getur maður náð þangað,“ sagði Skagamaðurinn efnilegi.

Innslag Dplay má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Allt gengur Ísak og Norrköping í hag

Hinn 17 ára gamli Ísak Bergmann Jóhannesson hélt í kvöld áfram að láta til sín taka í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta en hann átt þátt í öðru af mörkum toppliðs Norrköping í 2-0 sigri á Örebro.

Ísak áfram taplaus í Allsvenskan

Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði Norrköping sem gerði 1-1 jafntefli við Malmö á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Líkir Ísaki við Batman: Ofurhetja án ofurkrafta

Robert Laul, blaðamaður á Aftonbladet í Svíþjóð, hefur mikið álit á Ísaki Bergmann Jóhannessyni, sautján ára leikmanni Norrköping. Hann segir engin takmörk fyrir því hversu langt hann getur náð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×