Erlent

Þremur gíslum sleppt úr haldi í gísla­töku í Úkraínu

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Þremur gíslum var sleppt úr haldi þar sem vopnaður maður heldur farþegum lítillar rútu í gíslingu í Úkraínu.
Þremur gíslum var sleppt úr haldi þar sem vopnaður maður heldur farþegum lítillar rútu í gíslingu í Úkraínu. EPA-EFE/MARKIIAN LYSEIKO

Þremur gíslum hefur verið sleppt lausum í gíslatöku í borginni Lutsk í vestanverðri Úkraínu eftir margra klukkutíma viðræður við gíslatökumanninn. Þremenningarnir eru sagðir óhultir. Maðurinn sem heldur hópi farþega lítillar rútu í gíslingu er sagður krefjast þess að hátt settir stjórnmálamenn lýsi því yfir að þeir séu „hryðjuverkamenn.“

Innanríkisráðherra Úkraínu, Arsen Avakov, leiðir viðræðurnar við manninn sem er sagður heita Maksym Kryvosh og er 44 ára gamall Rússi. Avakov sagði í tilkynningu að gíslarnir séu ómeiddir og að yfirvöld vinni linnulaust að því að leysa úr málinu friðsamlega og fljótt. Þá sagði hann fyrri fréttir um að Kryvosh ætti við geðræn vandamál að stríða rangar.

Kryvosh hefur verið dæmdur fyrir ýmsa glæpi og hefur hann setið tíu ár í fangelsi fyrir fjársvik, rán og ólögleg vopn. Maðurinn skaut fyrr í dag á lögregludróna út um rúðu á rútunni og kastaði handsprengju sem sprakk ekki, að sögn fréttastofu AP. Þá er hann sagður halda því fram að hann hafi komið fyrir sprengju á opinberum stað í borginni sem hann gæti sprengt með fjarstýringu.

Hluti miðborgar Lutsk hefur verið girt af vegna umsátursins og íbúum verið sagt að halda sig heima eða á vinnustöðum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×