Fótbolti

Belotti sökkti Rómverjum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Belotti 2-0 Roma
Belotti 2-0 Roma vísir/getty

Rómverjar byrja nýtt ár ekki með stæl en þeir fengu kjörið tækifæri til þess þegar þeir fengu Torino í heimsókn í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. 

Roma þurfti á sigri að halda til að þjarma að þremur efstu liðunum en ítalski markahrókurinn Andrea Belotti sá til þess að Roma fékk ekkert út úr leik kvöldsins.

Belotti kom Torino í forystu á lokamínútu fyrri hálfleiks og tvöfaldaði svo forystuna skömmu áður en flautað var til leiksloka. Lokatölur 0-2 fyrir Torino.

Á sama tíma í Frakklandi átti PSG ekki í neinum vandræðum með neðri deildar lið Linas Montlhery í franska bikarnum. Edinson Cavani (2), Pablo Sarabia (2), Eric Choupo-Moting og Adil Aouchiche sáu um markaskorun í 0-6 sigri.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×