Lífið

Ótrúleg flugeldasýning við hæstu byggingu heims á gamlárskvöld

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ljósasýning í Dúbaí.
Ljósasýning í Dúbaí.

Flugeldar eru aldrei langt undan víðsvegar í heiminum þegar klukkan slær miðnætti á gamlárskvöld.

Í Dúbaí er haldið upp á nýja árið með stæl og var þar sett á svið heljarinnar flugeldasýning við hæstu byggingu heims, Burj Khalifa.

Mörg þúsund manns voru viðstödd sýninguna sem var í boði stjórnvalda í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og flugfélagsins United Arab Emirates.

Það má með sanni segja að sýningin hafi verið lygileg eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.