Býðst til að segja af sér eftir að hafa gagnrýnt forsetann Atli Ísleifsson skrifar 17. janúar 2020 08:52 Hinn 35 ára Oleksiy Honcharuk varð yngsti maðurinn í sögunni til að leiða ríkisstjórn Úkraínu þegar hann tók við embætti forsætisráðherra í ágúst síðastliðinn. Getty
Oleksiy Honcharuk, forsætisráðherra Úkraínu, hefur boðist til að segja af sér embætti eftir að myndband náðist af honum þar sem hann gagnrýndi forsetann Volodymyr Zelenskiy. Ekki liggur fyrir hvort afsögnin verði tekin til greina. Hinn 35 ára Honcharuk varð yngsti maðurinn í sögunni til að leiða ríkisstjórn Úkraínu þegar hann tók við embætti forsætisráðherra í ágúst síðastliðinn. Á myndbandinu er Honcharuk sagður hafa sagt að hann efaðist um getu forsetans Zelenskiy til að leiða efnahagslíf landsins. Í færslu á Facebook segir Honcharuk að hann hafi tekið við embættinu til að framfylgja stefnu forsetans. „Í mínum huga er [forsetinn] fyrirmynd gegnsæis og velsæmis.“ Hann segist hins vegar hafa undirritað afsagnarbréfið til að tryggja að virðing og traust hans í garð forsetans sé hafið yfir allan vafa. Skrifstofa Zelenskiy hefur staðfest móttöku bréfsins, en ekki er ljóst á þessari stundu hvort afsögnin verði tekin til greina og lögð fyrir þingið.
Úkraína Mest lesið „Þetta eru í rauninni mjög sorglegar niðurstöður“ Innlent Vissu af árásarmanninnum en týndu honum í fjöldanum Erlent Sautján milljóna króna greiðslan vekur hneykslan Innlent Eldingar með skúrum síðdegis Veður Gekk berserksgang með öskrum og ólátum Innlent Joe Biden með Covid Erlent Hét því að endurvekja bandaríska drauminn Erlent Sérdagar fyrir Íslendinga vegna hótana og yfirgangs Innlent Sæmdur fálkaorðu fyrir endurreisn safns Samúels Jónssonar Innlent Hinn látni í Suðursveit ungur pólskur maður Innlent Fleiri fréttir Íslenski nuddarinn í Kanada sýknaður Bandaríkjaforsetar skotmörk blóðugra banatilræða Vissu af árásarmanninnum en týndu honum í fjöldanum Hét því að endurvekja bandaríska drauminn Joe Biden með Covid Biden leggur lokahönd á tillögur að breytingum á hæstarétti Bretar samþykkja sölu dýrafóðurs úr ræktaðri kjötvöru Eitraði fyrir sjálfri sér og ferðafélögum sínum með blásýru Stefna Starmers mörkuð í ræðu konungs Íranir hafna aðild að banatilræðinu Ekkert nema ást og aðdáun á landsþingi Repúblikana Valið á Vance fyrirboði einangrunarhyggju í utanríkismálum Tveir fundust skotnir til bana í brunnum bíl í Malmö Grunar að Íranir hafi skipulagt morð á Trump fyrir atburði vikunnar Vonar að árásin gegn Trump veki Bandaríkjamenn Hver er J.D. Vance? Pattstaða í Frakklandi Segja Musk hyggjast styrkja Trump um 45 milljónir dala á mánuði „Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Leyniskjalamáli Trump vísað frá dómi Fulltrúar Hamas og Fatah funda í Kína í næstu viku Hringurinn þrengist í leitinni að varaforsetaefni Lík Jay Slater fundið Kallas segir af sér vegna nýja starfsins Raðmorðingi játar að hafa myrt allt að 42 konur Katrínu tekið fagnandi á Wimbledon „Ég ætti að vera dauður“ Tæki 100 flutningabifreiðar 15 ár að flytja húsarústirnar á brott Sjá meira