Ísland er komið áfram í milliriðla á EM 2020 í handbolta. Þetta var ljóst eftir jafntefli Danmerkur og Ungverjalands, 24-24, í kvöld.
Íslendingar hafa unnið báða leiki sína á EM og eru með fjögur stig á toppi E-riðils. Ungverjar eru í 2. sætinu með þrjú stig og Danir í því þriðja með eitt stig. Rússar reka lestina og eru úr leik.
Síðustu tveir leikirnir í E-riðli fara fram á miðvikudaginn. Klukkan 17:15 mætast Ísland og Ungverjaland og klukkan 19:30 er komið að leik Rússlands og Danmerkur.
Ef Ísland vinnur Ungverjaland er öruggt að liðið fer með tvö stig í milliriðla.
Íslendingar verða líka með örlög Dana í sínum höndum á miðvikudaginn. Danir þurfa að treysta á að Íslendingar vinni Ungverja til að eiga möguleika á að komast áfram. Þeir þurfa svo að sjálfsögðu að vinna Rússa í seinni leiknum.
Ef það gerist verða Danir og Ungverjar með jafn mörg stig (3) og þá ræður heildarmarkatala því hvort liðið kemst áfram. Eins og staðan er núna er Ungverjaland með eitt mark í plús en Danmörk eitt mark í mínus.
Ef Ísland og Ungverjaland gera jafntefli eða Ungverjar vinna eru heims- og Ólympíumeistarar Dana úr leik.
Geri Ísland og Ungverjaland jafntefli fara bæði liðin með eitt stig í milliriðla. Vinni Ungverjar fara þeir áfram með tvö stig en Íslendingar ekkert.
Í milliriðli II, sem verður leikinn í Malmö, fara tvö efstu liðin úr D-, E- og F-riðli. Ljóst er að Noregur og Portúgal fara áfram úr D-riðli og Ísland úr E-riðli.
Hvert lið leikur fjóra leiki í milliriðli II. Þeir fara fram 17., 19., 21. og 22. janúar.
Tvö efstu liðin fara í undanúrslit en liðið í 3. sæti milliriðilsins leikur um 5. sætið á mótinu.
Íslendingar komnir í milliriðla en þurfa að vinna Ungverja

Tengdar fréttir

Twitter eftir sigurinn: „Eltir mig útum allt í um áratug en tókst mig kannski ekki úr umferð“
Ísland er með með fullt hús stiga eftir tvær umferðir á EM en strákarnir okkar unnu sigur á Rússlandi í dag, 34-23.

Aron og Alexander mættu saman í viðtal og fóru á kostum
Það var létt yfir tveimur af stjörnum íslenska landsliðsins í handbolta í dag.

Sigvaldi: Týpískt að klúðra lokaskotinu
Sigvaldi Björn Guðjónsson átti frábæran leik með Íslandi gegn Rússlandi á EM í kvöld.

Leik lokið: Ísland - Rússland 34-23 | Rússarnir sáu aldrei til sólar
Ísland er með fullt hús stiga í E-riðli Evrópumótsins í handbolta eftir ellefu marka stórsigur á Rússlandi, 34-23.

Einkunnir strákanna okkar í kvöld: Alexander og Sigvaldi fá báðir fullt hús
Íslenska handboltalandsliðið vann stórsigur á rússneska birninum í öðrum leik sínum á Evrópumeistaramótinu og það voru margir leikmenn íslenska liðsins að spila vel.

Uppgjör Henrys: Rússneski björninn á hlaðborði strákanna okkar
Strákarnir okkur buðu til veislu í Malmö Arena í kvöld. Veisla sem verður lengi í minnum höfð. Stórkostlegur leikur hjá þeim og frábær ellefu marka sigur, 34-23, í húsi. Það voru engir aukaleikarar í kvöld. Bara stjörnur sem blómstruðu.

Danir þurfa að treysta á Íslendinga á miðvikudaginn
Heims- og ólympíumeistararnir eru í vandræðum á EM 2020.

Janus Daði: Við erum töffarar
Selfyssingurinn stóð fyrir sínu þegar Íslendingar rúlluðu yfir Rússa.

Topparnir í tölfræðinni á móti Rússlandi: Örvhentu strákarnir skiluðu saman tuttugu mörkum
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann ellefu marka stórsigur á Rússum, 34-23, í öðrum leik sínum á Evrópumótinu 2020 sem fer fram í Svíþjóð, Noregi og Austurríki.

Guðmundur fékk gæsahúð yfir varnarleiknum
Guðmundur Guðmundsson gekk stoltur frá borði í kvöld.

Björgvin Páll: Þeir voru frosnir í sókninni
Björgvin Páll Gústavsson varði 13 skot þegar Ísland vann stórsigur á Rússlandi.