Fótbolti

Þægi­legt hjá PSG í bikarnum er stjörnurnar fengu frí

Anton Ingi Leifsson skrifar
Paredes fagnar.
Paredes fagnar. vísir/getty

Paris Saint-Germain er nokkuð þægilega komið áfram í franska bikarnum eftir 2-0 sigur á Pau í kvöld.

Pau leikur í C-deildinni í franska boltanum og eru ansi mörg sæti sem skilja liðin að í deildarkeppninni.

Kylian Mbappe og Angel Di Maria voru geymdir á varamannabekk PSG og Neymar fékk algjörlega frí sem og Thiago Silva.







Leandro Daniel Paredes skoraði fyrra mark PSG á 25. mínútu og síðara markið kom á 53. mínútu er Pablo Sarabia skoraði. Lokatölur 2-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×