Innlent

Tillögu Sjálfstæðisflokksins vísað frá

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Fundur borgarstjórnar hófst í ráðhúsinu klukkan tvö í dag.
Fundur borgarstjórnar hófst í ráðhúsinu klukkan tvö í dag. Vísir/Friðrik Þór

Tillögu borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, um að fallið verði frá áformum um að stytta opnunartíma á leikskólum borgarinnar frá og með 1. apríl, var vísað frá á fundi borgarstjórnar nú á sjöunda tímanum. Meirihlutinn vísaði til þess að eftir ætti að ræða breytinguna á opnun leikskóla í borgarráði.

Frávísunartillagan var samþykkt með tólf atkvæðum borgarfulltrúa meirihlutans gegn níu atkvæðum borgarfulltrúa minnihlutans.

Í bókun Sjálfstæðisflokksins um málið segir að skerðingin sem ákveðin hafi verið af skóla- og frístundaráði varði 938 börn hið minnsta. „Auk þess snertir breytingin um 2.000 foreldra í borginni beint en fjölskyldur þessara barna munu að óbreyttu missa þjónustu sem borgin er nú þegar að bjóða upp á. Þetta þýðir skerðingu á þjónustu fyrir u.þ.b. 18% barna á leikskólum Reykjavíkurborgar og fjölskyldur þeirra,“ segir meðal annars í bókun Sjálfstæðisflokksins.

Sjá einnig: Vilja framkvæma jafnréttismat áður en tillaga um styttri leikskóladag verður samþykkt

Öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu utan eins séu nú með opið til fimm á daginn. „Það er ekki ásættanlegt að stærsta sveitarfélagið, sem á að vera leiðandi, skerði þessa grunnþjónustu við fjölskyldur í borginni,“ segir ennfremur í bókuninni.

Í bókun frá meirihlutanum segir að tillögu Sjálfstæðisflokksins sé vísað frá á grundvelli þess að tillagan sé nú stödd hjá borgarráði. Það til standi að framkvæma ítarlegt jafnréttismat áður en tillagan verði samþykkt. Þá verði gert ráð fyrir lengri aðlögunartíma en lagt var upp með í fyrstu.

„Samhliða verði veittur aukinn aðlögunartími að breytingunum sem miða að því að minnka álag á börn og starfsfólk leikskóla og standa þannig vörð um gæði leikskólastarfs sem er á heimsmælikvarða en glímir við tímabundinn vanda vegna skorts á leikskólakennurum eftir að kennaranám var lengt í fimm ár á sínum tíma,“ segir í bókun meirihlutans.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×