Þýski framleiðandinn Mercedes-Benz áætlar að kynna 32 nýjar bíla fyrir árslok 2022. Þar á meðal eru fleiri rafbílar, últra bíllinn Project One, rúmlega 800 hestafla tengiltvinn lúxus vagn og margt fleira.
Nýr SL mun líta dagsins ljós og hann mun horfa til uppruna síns. Bíllinn verður að hluta úr ofnu efni í fyrsta skipti í yfir 20 ár. Hann er væntanlegur snemma á næsta ári.
Þónokkuð magn AMG sportbíla eru í þróun. Hugmyndin er að halda sterkri markaðshlutdeild Mercedes í lúxusbíla sölu. Á meðal sportbíla í vinnslu er fjögurra dyra Coupé útgáfa af GT bílnum sem er væntanleg með yfir 800 hestafla tengiltvinn vél og samhliða Coupé útgáfunni er væntanlegur GT Black, sem er grjótharður brautarbíll.
Project One bíllinn er enn ekki kominn út. Hann verður sennilega ekki formlega gefinn út fyrr en á næsta ári. Hann hefur tafist vegna þess að hann virðist menga meira en honum bar að gera.
Þá ætlar Mercedes að uppfæra Smart línuna sína með nýjum rafbílum, endurbættum Fortwo og Forfour.
Þá er ónefnd EQ línan frá Mercedes, hún mun innan tveggja ára innihalda EQA, EQS, EQB, EQE og EQG til viðbótar við EQC sem þegar er kominn á göturnar.
Þá stendur til að kynna nýjan og uppfærðan S-Class sem er iðulega frekar stór viðburður samfélagi bílaáhugafólks, enda gefur S-Class innsýn í framtíðar staðalbúnað nýrra bíla. Það er ljóst að það verður mikið að gera á næstu árum að fylgjast með þróun Mercedes-Benz bifreiða.