Lífið

Sóli og Palli fóru yfir feril þess síðarnefnda á einstakan hátt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Palli og Sóli fóru á kostum í beinni á Stöð 2 á föstudagskvöldið.
Palli og Sóli fóru á kostum í beinni á Stöð 2 á föstudagskvöldið.

Fyrsti þátturinn að Föstudagskvöldi með Gumma Ben og Sóla Hólm fór í loftið aftur á föstudaginn á Stöð 2 ef nokkurra vikna hlé.

Gestir kvöldsins voru þau Sigga Dögg, dansdómarinn Jóhann Arnar og síðan söngvarinn ástsæli Páll Óskar Hjálmtýsson.

Palli fagnar fimmtíu ára afmæli sínu með pompi og prakt í næsta mánuði og það með þrennum tónleikum í Háskólabíói.

Í tilefni af því fóru Sóli Hólm og Palli yfir ferlinn með syrpu með hans vinsælustu lögum. Eins og alþjóð veit er Sólmundur lunkinn að herma eftir Palla eins og kom fram á föstudagskvöldið.

Klippa: Sóli og Palli fóru yfir feril þess síðarnefnda á einstakan hátt





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.