Fengu að fylgjast með Söru æfa fyrir Wodapalooza: Skipti á stormi og sól Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. febrúar 2020 09:00 Sara Sigmundsdóttir á fullu að æfa í sólinni á Flórida. Skjámynd/Youtube/Trifecta
Sara Sigmundsdóttir byrjaði Wodapalooza CrossFit mótið vel og deilir efsta sætinu með ástralska heimsmeistaranum Tiu-Clair Toomey eftir fyrsta daginn. Trifecta fékk að fylgjast með Söru æfa fyrir Wodapalooza og hefur nú birt fyrsta myndbandið með íslensku CrossFit drottningunni. Trifecta er einn af styrktaraðilunum á bak við Söru. Það er ekki nóg með að fólkið frá Trifecta fengi að fylgjast með Söru æfa á Flórída í undirbúningi sínum fyrir Wodapalooza þá var hún einnig tekin í viðtal. "Miami Heat" was all about Sara Sigmundsdottir; Fastest in the prelims, semis, and finals! 1st: Sara Sigmundsdottir, 1:17 2nd: Amanda Barnhart, 1:24 3rd: Tia-Clair Toomey, 1:33 pic.twitter.com/yJVariomdZ— Wodapalooza (@wodapalooza) February 21, 2020 „Ég yfirgaf storminn á Íslandi, sem betur fer og ég er hér í sólinni þó að ég hafi reyndar komið með rigninguna með mér. Ég æfði í fjóra daga í Orlando til að venjast rakanum og hitanum en keyrði svo frá Orlando til Fort Lauderdale þar sem ég æfði í fyrra. Ég hitti kollega mína í Fort Lauderdale CrossFit og það var gaman að sjá alla aftur,“ sagði Sara í upphafi viðtalsins. „Núna er miðvikudagur og keppnin hefst á morgun. Ég er búin að æfa mikið í sólinni eins og þú sérð því ég er svolítið rauð. Mér líður mjög vel fyrir þessa keppni,“ sagði Sara. „Það er búinn að vera mjög harður vetur á Íslandi. Ég fór reyndar ekki til Íslands fyrr en 23. desember af því að ég var í Dúbaí. Ég var því aðeins búin að vera í sex vikur á Íslandi en gat ekki beðið eftir að komast í smá sól,“ sagði Sara. „Það var góð ákvörðun að koma hingað. Ég var veik heima, vegirnir voru lokaðir og það var stormur úti. Ég hugsaði: Ég þarf markmið og ég ætla að keppa á Wodapalooza ef ég fær boð. Þannig tók ég þessa ákvörðun og ég er mætt hingað til að hafa gaman, fá að æfa á ströndinni og þetta verður frábært,“ sagði Sara. Það má sjá viðtalið við Söru og sjá hana æfa á fullu í sólinni á Flórída hér fyrir neðan.
CrossFit Tengdar fréttir Sara hefur aldrei unnið Toomey en tekst það hjá henni núna? Sara Sigmundsdóttir og Tia-Clair Toomey mætast á Wodapalooza CrossFit mótinu sem hefst í dag en báðar hafa þær unnið þrjú Sanctional mót á ferlinum. Engin kona hefur náð að vinna fjögur slík mót. 20. febrúar 2020 13:15 Sara: Finnst ennþá eins og þetta sé of gott til að vera satt Margir bíða spenntir eftir því hvort Sara Sigmundsdóttir geti haldið sigurgöngu sinni áfram á stórmótunum í CrossFit. Sara er nú komin til Flórída þar sem hún keppir á Wodapalooza CrossFit mótinu í Miami. 14. febrúar 2020 10:00 Sara og Tia efstar og jafnar eftir fyrsta daginn á Wodapalooza Einvígi Söru Sigmundsdóttur og Tiu-Clair Toomey byrjar frábærlega því þær eru efstar og jafnar að stigum eftir fyrsta daginn. Sara var fljót að svara frábærri fyrstu æfingu Ástralans. 21. febrúar 2020 08:00 Augnablikið þegar Sara skipti yfir í keppnisgírinn náðist á myndband Sara Sigmundsdóttir er ekki bara ein besta CrossFit kona heims því hún er einnig ein sú allra vinsælasta. Lifandi og glaðleg framkoma hennar heillar flesta upp úr skónum á mótum og annars staðar. 7. febrúar 2020 09:00 Meira en sex milljónir í boði fyrir Söru og hinar stelpurnar á Wodapalooza Það verður glæsilegt verðlaunafé á Wodapalooza CrossFit mótinu sem hefst í Miami á morgun. 19. febrúar 2020 11:00 Wodapalooza CrossFit mótinu stillt upp sem einvígi á milli Söru og Tiu-Clair Toomey Sara Sigmundsdóttir var á mikilli sigurgöngu síðustu mánuði ársins 2019 en nú er komið að fyrstu CrossFit keppni hennar á árinu 2020. 18. febrúar 2020 09:30 Mest lesið Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Golf Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Golf Víkingar með augun á leik í Albaníu í kvöld Fótbolti „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Fótbolti Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða Enski boltinn Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Sport Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Enski boltinn Ætla sér inn á Ólympíuleikana með hjálp dómstóla Sport McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Sport Fleiri fréttir Víkingar á leið til Albaníu Grátlegt tap niðurstaðan og barátta um sæti í A-deild framundan Hin reynda Dinkins í raðir Njarðvíkur Enn ein stjarnan slítur krossband í hné Guðmundur Bragi til Danmerkur Stefán Ingi á leið til Noregs KR fær ungan framherja frá Húsavík Fyrrum leikmaður Everton í teymi Slot Fórnaði sér fyrir fyrsta boltann frá Mbappé FIFA hefur rannsókn á rasískum söngvum Argentínumanna Ætla sér inn á Ólympíuleikana með hjálp dómstóla Adam Silver ver nýjan svuntuskatt NBA deildarinnar Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða Víkingar með augun á leik í Albaníu í kvöld Frá Liverpool beint í teymi Flick Cecilía Rán spilar með Internazionale í vetur Luka Modric framlengir samning sinn við Real Madrid Liðsfélagi Hákonar á leið til United Jón Axel fer í nýtt félag á Spáni Borgarstjóri Parísar synti í Signu: „Ekkert of hættulegt“ Fer frá Barcelona til Chelsea Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Wiegman gaf lítið fyrir það að hún gæti tekið við enska karlalandsliðinu Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Sjáðu vítaklúður Nikolaj Hansen og mörkin í gær „Það var alltaf hugmyndin, þannig að mission completed“ McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Como viðurkennir að leikmaður liðsins hafi kallað Hwang Jackie Chan Miklar væntingarnar til íslenska landsliðsins réttlætanlegar Sjá meira
Sara hefur aldrei unnið Toomey en tekst það hjá henni núna? Sara Sigmundsdóttir og Tia-Clair Toomey mætast á Wodapalooza CrossFit mótinu sem hefst í dag en báðar hafa þær unnið þrjú Sanctional mót á ferlinum. Engin kona hefur náð að vinna fjögur slík mót. 20. febrúar 2020 13:15
Sara: Finnst ennþá eins og þetta sé of gott til að vera satt Margir bíða spenntir eftir því hvort Sara Sigmundsdóttir geti haldið sigurgöngu sinni áfram á stórmótunum í CrossFit. Sara er nú komin til Flórída þar sem hún keppir á Wodapalooza CrossFit mótinu í Miami. 14. febrúar 2020 10:00
Sara og Tia efstar og jafnar eftir fyrsta daginn á Wodapalooza Einvígi Söru Sigmundsdóttur og Tiu-Clair Toomey byrjar frábærlega því þær eru efstar og jafnar að stigum eftir fyrsta daginn. Sara var fljót að svara frábærri fyrstu æfingu Ástralans. 21. febrúar 2020 08:00
Augnablikið þegar Sara skipti yfir í keppnisgírinn náðist á myndband Sara Sigmundsdóttir er ekki bara ein besta CrossFit kona heims því hún er einnig ein sú allra vinsælasta. Lifandi og glaðleg framkoma hennar heillar flesta upp úr skónum á mótum og annars staðar. 7. febrúar 2020 09:00
Meira en sex milljónir í boði fyrir Söru og hinar stelpurnar á Wodapalooza Það verður glæsilegt verðlaunafé á Wodapalooza CrossFit mótinu sem hefst í Miami á morgun. 19. febrúar 2020 11:00
Wodapalooza CrossFit mótinu stillt upp sem einvígi á milli Söru og Tiu-Clair Toomey Sara Sigmundsdóttir var á mikilli sigurgöngu síðustu mánuði ársins 2019 en nú er komið að fyrstu CrossFit keppni hennar á árinu 2020. 18. febrúar 2020 09:30