Erlent

Neyðarástand í Kaliforníu

Samúel Karl Ólason skrifar
Slökkviliðsmenn leita skjóls í bílum sínum vegna gróðurelds í gær.
Slökkviliðsmenn leita skjóls í bílum sínum vegna gróðurelds í gær. AP/Kent Porter

Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, hefur lýst yfir neyðarástandi í ríkinu vegna mikilla gróðurelda. Mikil hitabylgja gengur nú yfir vesturhluta Bandaríkjanna og hefur sú bylgja og gróðureldarnir leitt til mikils rafmagnsleysis í Kaliforníu. Einhverjir eldanna hafa kviknað vegna eldinga og stöðugur vindur hefur gert slökkvistarf erfitt.

Yfirlýsing Newsom felur meðal annars í sér að hann hefur aðgang að meiri peningum og þjóðvarðliði Kaliforníu til að sporn gegn ástandinu í ríkinu.

Ríkisstjórinn sagði í yfirlýsingu í gærkvöldi að öllum leiðum yrði beitt til að verja íbúa Kaliforníu í þessum öfgafullu aðstæðum.

Þúsundir hafa þurft að flýja heimili sín á undanfarinni viku.

Hitinn hefur reynst slökkviliðsmönnum verulega erfiður ogf er ekkert útlit fyrir að kólna muni á næstu dögum, samkvæmt frétt LA Times.

Vegna hitabylgjunnar hefur rafmagnsnotkun aukist til muna og hefur þurft að slökkva á rafmagni víða í ríkinu. Í gær var útlit fyrir að allt að tvær milljónir heimila og fyrirtækja yrðu án rafmagns í minnst klukkustund. Eftir neyðarkall frá yfirvöldum drógu íbúar þó verulega úr rafmagnsnotkun og reyndist ekki nauðsynlegt að grípa til þeirra aðgerða.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×