Fótbolti

Fá Birkir og Emil að fljúga? | Rúmenar í svipaðri stöðu

Sindri Sverrisson skrifar
Birkir Bjarnason og Emil Hallfreðsson á landsliðsæfingu. Þeir búa á Ítalíu þar sem kórónaveiran hefur dreifst hratt.
Birkir Bjarnason og Emil Hallfreðsson á landsliðsæfingu. Þeir búa á Ítalíu þar sem kórónaveiran hefur dreifst hratt. vísir/vilhelm

Eftir að strangt ferðabann var sett á á Norður-Ítalíu í nótt er alls kostar óvíst hvort íslenskir og rúmenskir leikmenn sem þar spila fótbolta komast í EM-umspilsleikinn sem enn stendur til að fari fram á Laugardalsvelli 26. mars.

Landsliðsmennirnir Birkir Bjarnason og Emil Hallfreðsson leika með Brescia og Padova í bæjum sem falla undir ferðabannið vegna kórónuveirunnar. Þó stendur enn til að lið þeirra haldi áfram að spila í ítölsku deildakeppninni, þar sem sett hefur verið á áhorfendabann.

„Ég veit ekki alveg hvernig staðan er akkúrat núna. Þetta bann var sett á í nótt og ég hef eiginlega ekki meiri upplýsingar, en það er mikið gert úr þessu í fjölmiðlum. Þetta eru viðkvæmar aðstæður,“ sagði Emil við Vísi í dag.

Óljóst virðist enn vera hvort Emil og Birkir geti fengið undanþágu frá ferðabanni til að komast til Íslands, en ef þeir fengju hana yrðu þeir væntanlega að fara í tveggja vikna sóttkví við komuna til landsins. Þess vegna er lítill tími til stefnu.

„Það er bara ljóst að staðan á Ítalíu er mjög erfið, burtséð frá fótbolta. Við þurfum að sjá hvað þetta hefur í för með sér,“ sagði Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, við Vísi í dag.

Hún sagði mál Birkis og Emils ekki hafa verið rætt við UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, sem er með EM-umspilið á sinni könnu:

„Við höfum ekki rætt neitt varðandi einstaka leikmenn. UEFA hefur bara sagt að allir leikir muni fara fram, að öllu óbreyttu,“ sagði Klara.

En hefur KSÍ verið í sambandi við forráðamenn Brescia og Padova varðandi möguleikann á að Birkir og Emil komist til Íslands sem fyrst, þó að ráðgert sé að lið þeirra spili nokkra leiki fram að EM-umspilinu?

„Við höfum ekki rætt við þau beint en skoðað ýmsa möguleika í þessu. Við vitum ekkert hvað verður á Ítalíu. Það sem ég get sagt núna gæti verið breytt á morgun,“ sagði Klara.

Emil utan lokaðs svæðis og segir lífið ganga sinn vanagang
Emil Hallfreðsson í leiknum gegn Tyrkjum á Laugardalsvelli í fyrrasumar.vísir/getty

Emil er með fjölskyldu sinni í Veróna þar sem þau búa en borginni hefur ekki verið lokað af eins og bænum Padova þar sem Emil spilar og æfir.

„Ég veit ekki hvernig þeir ætla að haga þessu í framhaldinu og er í sömu óvissu og allir. Það eru einhverjir búnir að kalla eftir algjöru hléi á fótboltanum, eins og gert var í Sviss, og spurning hvort það verði raunin hérna. Það er alla vega búið að setja reglur um að spilað verði fyrir luktum dyrum,“ sagði Emil, sem er yfirvegaður yfir stöðunni og segir það sama eiga við um fólkið í kringum sig:

„Lífið hérna gengur svolítið sinn vanagang bara. Menn eru ekkert að deyja úr stressi, en það er mikið gert úr þessu í fjölmiðlum. Fólk er svolítið bara að gera sitt hérna í bænum, þannig séð.“

Þrír Rúmenar á Norður-Ítalíu
Ionut Radu er leikmaður Parma á Norður-Ítalíuvísir/getty

Ferðabannið á Ítalíu kemur til með að hafa áhrif á rúmenska landsliðið rétt eins og það íslenska, ef engar undanþágur verða leyfðar. Þrír leikmenn sem eru á lista þjálfarans Mirel Radoi yfir þá sem koma til greina í leikinn við Ísland, spila á Norður-Ítalíu. Það eru markvörðurinn Ionut Radu hjá Parma, Vlad Chiriches hjá Sassuolo og Vasile Mogos frá Cremonese.

Stöðvi ferðabann þá ekki þyrftu þeir væntanlega að fara í sóttkví líkt og Emil og Birkir, þrátt fyrir að vera ferðamenn, þar sem þeir koma frá skilgreindum hættusvæðum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×