Fótbolti

Rúnar Alex spilaði í sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Rúnar Alex Rúnarsson .
Rúnar Alex Rúnarsson . vísir/getty

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson stóð á milli stanganna hjá Dijon í kvöld þegar liðið fékk Toulouse í heimsókn í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Hamza Mendyl kom Dijon í forystu á 40.mínútu en gestirnir svöruðu um leið og var staðan í leikhléi því jöfn, 1-1. 

Á 53.mínútu skoraði Nayef Aguerd það sem reyndist sigurmark leiksins og dýrmæt þrjú stig í höfn fyrir Rúnar Alex og félaga.

Með sigrinum lyfti Dijon sér upp í 16.sæti deildarinnar og er nú þremur stigum frá fallsvæðinu.

 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×