Sport

Í beinni í dag: Juventus og Inter mætast loks fyrir luktum dyrum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Inter þarf sigur í kvöld.
Inter þarf sigur í kvöld. vísir/getty

Það er boðið upp á golf og knattspyrnu á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag.

Þrír leikir í Serie A verða sýndir beint en hæst ber stórleikur Juventus og Inter Milan sem átti að fara fram um síðustu helgi en var frestað vegna kórónaveirunnar. Hann mun verða spilaður í kvöld en engum áhorfendum verður hleypt á völlinn.

Áhorfendur verða bannaðir á öllum íþróttaviðburðum á Ítalíu næsta mánuðinn vegna útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi.

Tveir leikir úr spænsku úrvalsdeildinni verða sýndir beint þar sem Real Madrid bíður verðugt verkefni til að endurheimta toppsæti deildarinnar þegar Madridingar heimsækja Real Betis.

Beinar útsendingar dagsins


09:00 Commercial Bank Qatar Masters (Stöð 2 Golf)

13:50 AC Milan – Genoa (Stöð 2 Sport)

16:55 Udinese – Fiorentina (Stöð 2 Sport)

17:20 Villarreal – Leganes (Stöð 2 Sport 2)

17:25 Arnold Palmer Invitational (Stöð 2 Golf)

19:35 Juventus – Inter (Stöð 2 Sport)

19:55 Real Betis - Real Madrid (Stöð 2 Sport 2)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×