Zelenskíj hristir hressilega upp í ríkisstjórn sinni Atli Ísleifsson skrifar 5. mars 2020 08:29 Volodymyr Zelenskíj Úkraínuforseti á þingfundi í gær. vísir/vilhelm
Volodymyr Zelenskíj Úkraínuforseti hefur gert víðtækar breytingar á ríkisstjórn landsins þar sem forsætisráðherranum hefur meðal annars verið komið frá. Með þessu er Zelenskíj að breðgast við dvínandi vinsældum stjórnar hans, auk þess að sérstök óánægja ríki með að tafir hafi orðið á þeim umbótum sem lofað var að ráðist yrði í. Meirihluti úkraínska þingsins samþykkti að koma forsætisráðherranum, hinum 35 ára Oleksiy Honcharuk, frá í atkvæðagreiðslu í gær. Honcharuk tók við embætti forsætisráðherra fyrir um hálfu ári og hefur stjórnartíð hans einkennst af deilum innan stjórnarinnar. Honcharuk bauðst til að segja af sér fyrir fáeinum mánuðum eftir að upptaka var birt af honum þar sem hann gagnrýndi skilning forsetans Zelenskíj á efnahagsmálum. Zelenskíj hefur tilnefnt hinn 44 ára Denys Shmygal sem næsta forsætisráðherra landsins. Hann er lítt þekktur embættismaður frá vesturhluta landsins sem hefur starfað fyrir orkufyrirtækið DTEK sem er í eigu Rinat Akhmetov, eins af ríkustu mönnum landsins. Öðrum ráðherrum, meðal annars heilbrigðisráðherranum, hefur einnig verið komið frá.
Úkraína Tengdar fréttir Býðst til að segja af sér eftir að hafa gagnrýnt forsetann Forsætisráðherra Úkraínu hefur boðist til að segja af sér embætti eftir að myndband náðist af honum þar sem hann gagnrýndi forsetann Volodymyr Zelenskiy. Ekki liggur fyrir hvort afsögnin verði tekin til greina. 17. janúar 2020 08:52 Mest lesið „Þetta eru í rauninni mjög sorglegar niðurstöður“ Innlent Sérdagar fyrir Íslendinga vegna hótana og yfirgangs Innlent Vissu af árásarmanninnum en týndu honum í fjöldanum Erlent Sautján milljóna króna greiðslan vekur hneykslan Innlent Eldingar með skúrum síðdegis Veður Gekk berserksgang með öskrum og ólátum Innlent Joe Biden með Covid Erlent Hét því að endurvekja bandaríska drauminn Erlent Sæmdur fálkaorðu fyrir endurreisn safns Samúels Jónssonar Innlent Hinn látni í Suðursveit ungur pólskur maður Innlent Fleiri fréttir Íslenski nuddarinn í Kanada sýknaður Bandaríkjaforsetar skotmörk blóðugra banatilræða Vissu af árásarmanninnum en týndu honum í fjöldanum Hét því að endurvekja bandaríska drauminn Joe Biden með Covid Biden leggur lokahönd á tillögur að breytingum á hæstarétti Bretar samþykkja sölu dýrafóðurs úr ræktaðri kjötvöru Eitraði fyrir sjálfri sér og ferðafélögum sínum með blásýru Stefna Starmers mörkuð í ræðu konungs Íranir hafna aðild að banatilræðinu Ekkert nema ást og aðdáun á landsþingi Repúblikana Valið á Vance fyrirboði einangrunarhyggju í utanríkismálum Tveir fundust skotnir til bana í brunnum bíl í Malmö Grunar að Íranir hafi skipulagt morð á Trump fyrir atburði vikunnar Vonar að árásin gegn Trump veki Bandaríkjamenn Hver er J.D. Vance? Pattstaða í Frakklandi Segja Musk hyggjast styrkja Trump um 45 milljónir dala á mánuði „Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Leyniskjalamáli Trump vísað frá dómi Fulltrúar Hamas og Fatah funda í Kína í næstu viku Hringurinn þrengist í leitinni að varaforsetaefni Lík Jay Slater fundið Kallas segir af sér vegna nýja starfsins Raðmorðingi játar að hafa myrt allt að 42 konur Katrínu tekið fagnandi á Wimbledon „Ég ætti að vera dauður“ Tæki 100 flutningabifreiðar 15 ár að flytja húsarústirnar á brott Sjá meira
Býðst til að segja af sér eftir að hafa gagnrýnt forsetann Forsætisráðherra Úkraínu hefur boðist til að segja af sér embætti eftir að myndband náðist af honum þar sem hann gagnrýndi forsetann Volodymyr Zelenskiy. Ekki liggur fyrir hvort afsögnin verði tekin til greina. 17. janúar 2020 08:52