Sport

Sara: Æfi núna til að hafa gaman en ekki bara til að vinna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Sigmundsdóttir er frábær fyrirmynd í öllu sem hún gerir og hér sést hún með ungum aðdáanda.
Sara Sigmundsdóttir er frábær fyrirmynd í öllu sem hún gerir og hér sést hún með ungum aðdáanda. Mynd/Instagram

Sara Sigmundsdóttir er þessa dagana á fullu að undirbúa sig fyrir heimsleikana í CrossFit í næsta mánuði en hún hefur læti mikið af öllu mótlætinu á sínum ferli.

Sara Sigmundsdóttir er til alls líkleg á komandi heimsleikum í CrossFit og á mjög góðan möguleika á að tryggja sér sæti fimm manna lokaúrslitum. Hún leggur núna samt meiri áherslu á að njóta þess að æfa og koma sér í sitt besta mögulega form fremur að setja pressu á sig að vinna.

Sara Sigmundsdóttir hefur lært mikið á sig sjálfa á viðburðaríkum ferli sínum. Stóri titilinn hefur ekki komið í hús en Sara hefur engu að síður unnið marga glæsilega sigra.

Sara leggur áherslu á breytt hugarfar sitt í stuttu viðtali við Trifecta System sem er einn af hennar mikilvægu styrktaraðilum sem gerir henni kleift að æfa eins og atvinnumaður í CrossFit íþróttinni. Viðtalsbrotið má finna hér fyrir neðan.

View this post on Instagram

"I would have to say that there have been a few really tough times in my journey, where I wanted to give up completely. When I first started competing, I injured myself pretty badly - I tried a snatch grip and I fell with the bar landing on top of me. I broke my wrist very badly and was depressed while having to recover. I felt so defeated through the process but I had to remind myself that it was just a wall I had to climb over. Through any of these challenges I have faced, I have had to make changes in my training and mindset. Now I train for fun and not just to win. I enjoy the process much more instead of focusing on just the result. It's all been upward progress now." ??@sarasigmunds . . . #mondaymotivation #motivation #crossfit #fitness #athletes #training #upward

A post shared by TRIFECTA (@trifectasystem) on

„Ég verð að segja það að það hafa komið upp nokkrir mjög erfiðir tímar á mínu ferðalagi þar sem mig langaði mest að gefast upp,“ sagði Sara Sigmundsdóttir.

„Þegar ég byrjaði að keppa þá meiddi ég mig einu sinni mjög illa. Ég reyndi sérstakt grip í snörun en endaði með því að stöngin féll ofan á mig. Ég braut úlnliðinn minn mjög illa og var mjög þunglynd í endurhæfingunni," sagði Sara..

„Ég var svo sigruð í öllu þessu ferli að ég þyrfti alltaf að vera minna mig á það að þetta væri bara veggur sem ég þyrfti að komast yfir,“ sagði Sara í viðtalsbrotin á Instagram síðu

„Gegnum allt mótlætið sem ég hef lent í þá hef ég þurft að gera breytingar, bæði á því hvernig ég æfi og hvernig ég hugsa. Núna æfi ég til þess að hafa gaman og ekki bara til að vinna. Ég nýt ferlisins miklu meira í stað þess að einblína bara á úrslitin. Síðan hefur þetta allt legið upp á við hjá mér,“ sagði Sara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×