Gular viðvaranir víða um land Vésteinn Örn Pétursson skrifar 30. ágúst 2020 15:05 Hér má sjá svæðin hvar viðvaranir eru eða verða í gildi. Veðurstofa Íslands/Skjáskot
Gul veðurviðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan 21 í kvöld og gildir eins og stendur til klukkan 5 í nótt. Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við allhvassri suðaustanátt. Lausir munir geti fokið, til að mynda trampólín sem ekki eru tryggilega fest. Þá má búast við rigningu. Viðvörun í Faxaflóa tekur gildi klukkan 19 í kvöld og búast má við 20 til 25 metrum á sekúndu við fjöll. Ökumenn eru hvattir til að sýna varúð. Þá verður gul viðvörun einnig í gildi á Suðurlandi frá klukkan 19 í kvöld til 6 í nótt. Þar má einnig búast við suðaustanátt, um 13 til 18 metrum á sekúndu, til að mynda við ströndina og á Hellisheiði. Slíkur vindur getur verið varasamur fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og lausir munir gætu fokið. Þá má einnig búast við rigningu á Suðurlandi. Eins er gul viðvörun á Breiðafirði. Á vef Veðurstofunnar segir um viðvörunina í Breiðafirði: „Allhvöss eða hvöss sunnan- og suðaustanátt (meðalvindur 13-20 m/s) í vindstrengjum, einkum á norðanverðu Snæfellsnesi og vindhviður geta náð 25-30 m/s. Slíkur vindur er varasamur fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausir munir geta fokið. Einnig er búist við rigningu.“
Veður Mest lesið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Erlent Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Björg býður ungliðum til fundar Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Innlent Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Innlent Staðin að því að stinga inn á sig snyrtivörum Innlent Fleiri fréttir Suðurstrandarvegi lokað eftir árekstur „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Björg býður ungliðum til fundar Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Staðin að því að stinga inn á sig snyrtivörum Takmarka fjölda nemenda utan EES Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Mikill meirihluti ánægður með að Ísland taki ekki þátt Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Pollróleg þó starfsáætlun þingsins hafi verið felld úr gildi Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli Ragnhildur nýr framkvæmdastjóri Píeta samtakanna Norðurþing og Heidelberg undirrita viljayfirlýsingu vegna uppbyggingar á Bakka Skoða málsókn vegna látinna sona og hagstæðustu jólainnkaupin Vestmannaeyjastrengir 4 og 5 teknir í rekstur Grunaður um manndráp á Kársnesi Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Stofnunum fækkar um tuttugu Ísland tekur höndum saman með Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Skilaboð Vestfirðings til stjórnvalda ekki útvarpshæf eftir 50 milljóna króna tjón Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Óska eftir myndefni frá Kársnesi vegna mannslátsins „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni „Grafalvarlegt“ að Ísland fari gegn vísindalegri ráðgjöf Laxar struku úr landeldi í Eyjum Sjá meira