Lífið

Útilokar ekki að byrja aftur með Megan Fox

Sylvía Hall skrifar
Megan Fox og Brian Austin Green voru saman í um það bil fimmtán ár.
Megan Fox og Brian Austin Green voru saman í um það bil fimmtán ár. Vísir/Getty

Leikarinn Brian Austin Green segist opinn fyrir því að byrja aftur með fyrrverandi eiginkonu sinni Megan Fox. Green og Fox skildu í maí á þessu ári, en þau höfðu verið saman með hléum frá árinu 2004.

Saman eiga þau þrjá syni, þá Noah Shannon, Bodhi Ransom og Journey River. Hann segir ómögulegt að spá fyrir um hvað gerist í framtíðinni en þau hafi gengið í gegnum margt saman í gegnum tíðina. Þau séu bara á ólíkum stað sem stendur.

„Ég segi aldrei segja aldrei. Mér finnst fólk vera á ákveðnum leiðum í lífinu og stundum liggja þær leiðir saman, og þið farið þær leiðir saman,“ sagði leikarinn á Instagram í gær.

Leikkonan er þó nú í sambandi með rapparanum Machine Gun Kelly, en Green hefur verið sagður nokkuð ósáttur við það samband. Hann segist þó ekki hafa neina skoðun, enda hafi hann ekki hitt hann.

„Ég hef heyrt slæmar sögur um hann, en ég hef líka heyrt slæmar sögur um sjálfan mig og ég veit að flestar þeirra eru ósannar. Eins og staðan er núna hef ég ekkert á móti honum. Ég raunverulega vona að hann og Megan séu hamingjusöm.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.