Lífið

Landsliðsmennirnir sáttir með fyrstu fjóra þættina af Eurogarðinum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Menn tóku þættina á nuddbekknum. 
Menn tóku þættina á nuddbekknum. 

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fékk að horfa á fyrstu fjóra þættina á Eurogarðinum á Hótel Nordica í vikunni en liðið mætir því enska í Þjóðadeildinni á laugardaginn.

Hefð hefur skapast fyrir því að landsliðin fái að sjá áður óséð efni í landsliðsferðum og voru leikmenn landsliðsins sáttir við þættina ef marka má færslu Hannesar Þórs Halldórssonar á Twitter.

„Algjör negla,“ segir Hannes Þór sem starfar sem leikstjóri samhliða því að standa milli stanganna hjá Val í Pepsi Max-deildinni.

Eurogarðurinn fer í sýningu á Stöð 2 þann 27. september. Um er að ræða íslenska leikna sjónvarpsþætti með einvala liði leikara. Með helstu hlutverk fara Jón Gnarr, Anna Svava Knútsdóttir, Auðunn Blöndal, Steindi Jr. og Dóri DNA en mörg fleiri kunnugleg andlit munu birtast á skjánum í þessum glænýju þáttum.

Kolbeinn Sigþórsson horfir hér einn þátt af Eurogarðinum. 

Þættirnir eru átta talsins og gerast í Húsdýragarðinum. Eurogarðurinn fjallar um drykkfelldan miðaldra braskara með vafasaman viðskiptaferil sem kaupir Húsdýragarðinn en karakterinn er leikinn af Jóni Gnarr. Hann hefur stórkostlegar hugmyndir um framtíð garðsins sem hann kallar Eurogarðinn, sem hann sér fyrir sér ná upp í sömu stærðargráðu og Disney-World.

Kári Árnason virkar sáttur.

Um leikstjórn sér Arnór Pálmi Arnarson sem leikstýrði meðal annars Hæ Gosi, Ligeglad og Áramótaskaupinu 2018. Þættirnir eru framleiddir af Glassriver fyrir Stöð 2 en handritið skrifuðu Anna Svava Knútsdottir, Auðunn Blöndal, Steindi Jr., Dóri DNA og Arnór Pálmi.

Hér að neðan má sjá sýnishorn úr þáttunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.