Vísir var með beina útsendingu frá kynningarfundi Olís-deildanna í handbolta.
Þar var spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna opinberuð. Einnig var spáin fyrir Grill 66-deildirnar afhjúpuð.
Þá var skrifuðu HSÍ, Sýn og Olís undir nýjan þriggja ára samning um handboltann. Úrvalsdeildir karla og kvenna munu því áfram heita Olís-deildirnar og Sýn verður áfram með sjónvarpsréttinn frá báðum deildunum.
Útsendingu frá kynningarfundinum sem fór fram á Grand Hótel í hádeginu má sjá hér fyrir neðan.
Keppni í Olís-deild karla hefst fimmtudaginn 10. september og Olís-deild kvenna daginn eftir.
Spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna í Olís- og Grill 66-deildunum má sjá hér fyrir neðan.
Spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna í Olís deild kvenna
- 1. Fram 164 stig
- 2. ÍBV 149 stig
- 3. Valur 131 stig
- 4. Stjarnan 125 stig
- 5. KA/Þór 98 stig
- 6. HK 82 stig
- 7. Haukar 58 stig
- 8. FH 57 stig
Spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna í Olís deild karla
- 1. Valur 374 stig
- 2. Haukar 354 stig
- 3. FH 315 stig
- 4. Afturelding 288 stig
- 5. ÍBV 260 stig
- 6. Selfoss 257 stig
- 7. Stjarnan 251 stig
- 8. Fram 189 stig
- 9. KA 181 stig
- 10. Þór Ak. 119 stig
- 11. ÍR 113 stig
- 12. Grótta 107 stig
Spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna í Grill 66 deild karla
- 1. HK 257 stig
- 2. Kría 227 stig
- 3. Fjölnir 195
- 4. Valur U 186 stig
- 5. Haukar U 185 stig
- 6. Vængir Júpíters 184 stig
- 7. Víkingur R. 167 stig
- 8. Selfoss U 104 stig
- 9. Fram U 79 stig
- 10. Hörður 66 stig
Spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna í Grill 66 deild kvenna
- 1. Fram U 194 stig
- 2. Afturelding 173 stig
- 3. Grótta 151 stig
- 4. Selfoss 150 stig
- 5. Valur U 122 stig
- 6. ÍR 100 stig
- 7. Fjölnir/Fylkir 99 stig
- 8. HK U 69 stig
- 9. Víkingur R. 67 stig