Lífið

Gunnar og Hiroko trúlofuð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegar fréttir fyrir þetta flotta par.
Skemmtilegar fréttir fyrir þetta flotta par.

Leikarinn Gunnar Hansson og Hiroko Ara eru trúlofuð ein parið greindi frá því á Facebook á dögunum.

Mbl.is greinir fyrst frá. Gunnar Hansson er landsþekktur leikari og hefur farið á kostum undanfarin ár sem karakterinn Frímann Gunnarsson.

Frímann ferðast um landið í nýjum þáttum á RÚV um þessar mundir en þættirnir nefnast Smáborgarasýn Frímanns.

Hiroko, sem er fædd og uppalin í Japan, er ljósmyndari og kokkur. Hún hefur búið á Íslandi í tuttugu ár. Hún sagði í viðtali við Fréttatímann árið 2016 að Ísland hefði hjálpað henni að vera hún sjálf.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.