Innlent

Bíll á hliðina eftir á­rekstur á Flóka­götu

Atli Ísleifsson skrifar
Áreksturinn varð við gatnamót Flókagötu og Snorrabraut.
Áreksturinn varð við gatnamót Flókagötu og Snorrabraut. Teitur Þorkelsson

Bíll fór á hliðina eftir árekstur tveggja bíla við gatnamót Flókagötu og Snorrabrautar í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er sjúkra- og slökkvilið enn að störfum á staðnum, en að svo virðist sem að einungis hafi verið um minniháttar meiðsli að ræða.

Áreksturinn varð um klukkan 8:15 í morgun.

Frá vettvangi í morgunTeitur Þorkelsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×