Lífið

Bachelor-stjarna fer fram á nálgunar­bann á fyrr­verandi kærastann

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Randolph og Underwood meðan allt lék í lyndi.
Randolph og Underwood meðan allt lék í lyndi. Matt Winkelmeyer/Getty Images

Cassie Randolph, sem tók þátt í 23. þáttaröð hinna geysivinsælu sjónvarpsþátta Bachelor, hefur nú sakað Colton Underwood, piparsvein þáttanna sem hún átti í sambandi við eftir að þáttunum lauk, um að hafa komið fyrir staðsetningartæki aftan á bíl hennar svo hann gæti vitað um ferðir hennar. Þá hefur Randolph farið fram á nálgunarbann á Underwood.

Frá þessu er greint á vef TMZ, sem hefur undir höndum réttargögn þar sem Randolph sakar Underwood um að hafa einnig áreitt hana með „óþægilegum smáskilaboðum.“ Þau byrjuðu saman í lok 23. þáttaraðar Bachelor sem fór í loftið árið 2019 en slitu sambandinu í apríl.

Meðal skilaboða sem Randolph segir Underwood hafa sent eru ásakanir um að hún hafi verið í nánum samskiptum við fyrrverandi kærasta sinn. Þá segir hún Underwood hafa sent nafnlaus skilaboð á hana og sjálfan sig til þess að villa um fyrir henni og láta líta út eins og hann væri einnig fórnarlamb áreitisins.

Hún segir þá að síðar hafi Underwood viðurkennt fyrir sér að hafa sent skilaboðin og að hafa komið fyrir staðsetningarbúnaði aftan á bíl hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.