Landlæknisembættið hyggst stórefla eftirlit með þeim sem veita heilbrigðisþjónustu hér á landi á næsta ári en í heild eru það um 3100 aðilar. Stofnunin hefur síðustu þrjú ár gert innan við tíu úttektir á heilbrigðisþjónustu og kórónuveirufaraldurinn hefur sett strik í reikninginn á þessu ári.
Embætti landlæknis hefur eftirlit með öllum þeim aðilum sem veita heilbrigðisþjónustu hér á landi – en samkvæmt rekstraraðilaskrá embættisins eru það nú 3094 einingar samtals.
Við sögðum frá því í vikunni að embættið hefði ekki unnið formlega úttekt á skimunarstarfsemi Krabbameinsfélags Íslands en hafi í gegnum tíðina óskað eftir upplýsingum um starfsemina. Úttekt á gæðum og öryggi þjónustu Leitarstöðvarinnar er hins vegar hafin nú. Loks vinnur Landlæknir að því að fá aðila erlendis frá til að ganga úr skugga um að endurskoðun og skoðun sýna sé fullnægjandi að gæðum. Þá hefur komið fram að Sjúkratryggingar Íslands hafi ríka eftirlitsskyldu með að þjónustan sé í samræmi við gerða samninga. Fréttastofa hefur óskað eftir þjónustusamningi Sjúkratrygginga við krabbameinsfélagið í dag en hefur ekki fengið svör þaðan.
Landlæknir hefur gert um 7-8 úttektir á ári síðustu ár samkvæmt svörum embættisins en á þessu ári hafa einungis tvær skýrslur verið gerðar vegna slíkra útttekta vegna kórónuveirufaraldursins. Það stendur hins vegar til að efla gæði og öryggi heilbrigðisþjónustu til muna með því að gera gæðauppgjör hjá þeim sem veita þjónustuna. Á þessu ári hefur þegar verið kallað eftir gæðauppgjörum frá 27 aðilum. Á næsta ári er hins vegar stefnt að því að allir veitendur heilbrigðisþjónustu skili gæðauppgjöri og vænst er að það fyrirkomulag verði til þess að efla eftirlit embættisins til muna.