Lífið

Ófyndnasti vinur Sveppa er að hans mati Eiður Smári

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sveppi alltaf léttur og skemmtilegur í viðtölum.
Sveppi alltaf léttur og skemmtilegur í viðtölum.

Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, mætti í Brennsluna í morgun á FM957 og tók þátt í dagskráliðnum Yfirheyrslan.

Þar átti hann að svara nokkrum miserfiðum spurningum. Í því samtal kom meðal annars fram að ófyndnasti vinur hans er Eiður Smári.

Það steiktasta sem Sveppi hefur gert á árinu er að fara í tveggja daga afmæli hjá Auðunni Blöndal á Hótel Rangá.

Kynþokkafyllsti líkamshluti hans að eigin mati eru kálfarnir. Sem unglingur var Sveppi skotinn í Jennifer Aniston en hér að neðan má hlusta á yfirheyrsluna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.