Staðfesta komu Rúnars Alex sem verður númer þrettán Anton Ingi Leifsson skrifar 21. september 2020 16:47 Rúnar Alex kvittar undir samninginn. vísir/arsenal
Rúnar Alex Rúnarsson er genginn í raðir Arsenal. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni nú síðdegis en hann skrifar undir fjögurra ára samning við félagið. Skiptin hafa legið í loftinu síðustu vikur en KR-ingurinn kemur til félagsins frá Dijon í Frakklandi þar sem hann lék þrettán leiki í öllum keppnum á síðustu helgi. Rúnar Alex er alinn upp hjá KR en fór til Nordsjælland í Danmörku þar sem hann vakti verðskuldaða athygli. Eftir þriggja ára veru þar fór hann til Frakklands og nú til Arsenal. The newest member of our family pic.twitter.com/0t4MLn1Kxm— Arsenal (@Arsenal) September 21, 2020 „Við erum ánægðir með að bjóða Alex velkominn í hópinn. Við höfum verið að fylgjast með honum í einhvern tíma og hann hefur þá eiginleika sem við erum að leitast eftir í okkar markverði og sem persónu,“ sagði yfirmaður knattspyrnumála hjá Arsenal, Edu. Mikel Arteta, stjóri Arsenal, tók í svipaðan streng. „Við viljum skapa heilbrigða samkeppni um stöður í liðinu og það er tilhlökkun hjá okkur að sjá Alex koma inn í markmannsstöðuna hjá okkur,“ sagði Arteta. Rúnar Alex verður númer þrettán. Welcome to The Arsenal, Alex Runarsson @runaralex— Arsenal (@Arsenal) September 21, 2020
Enski boltinn Mest lesið Einn besti dómari landsins fær ekki leik Körfubolti Sakaði syni sína um „fullkomið mannorðsmorð“ á leynilegri upptöku Sport Leik lokið: Tindastóll - Keflavík 94-87 | Stólarnir sterkari í lokin Körfubolti Í beinni: Valur - Grindavík | Endurtekning á úrslitaeinvíginu í fyrra Körfubolti Jota hetjan þegar Liverpool náði aftur tólf stiga forystu Sport Var kóngurinn 1995 en „algjörlega á botninum“ 1997 Íslenski boltinn Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla Íslenski boltinn Vilja VAR á Íslandi og finnst Gylfi langbestur Íslenski boltinn „Meðvituð um að þetta er samfélagslegt vandamál“ Íslenski boltinn Jokic skoraði 61 stig en Westbrook eyðilagði allt Körfubolti Fleiri fréttir Tonali tryggði Newcastle dýrmætan sigur Man. City saknaði ekki Haaland í kvöld Í beinni: Liverpool - Everton | Ná grannarnir að trufla titilsóknina? Mo Salah í myndatökum niður við höfnina í Liverpool Segir að það hafi ekki verið mistök að selja Elanga „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Sagði Fernandes að hann færi hvergi Lýsa miklum áhuga Arsenal á manninum sem Man. Utd þráir Manchester City nokkuð þægilega í 4-liða úrslit Rashford lauk ævintýri Stefáns Teits og félaga Haaland sakaður um að meiða lukkudýrið Tugþúsundir fögnuðu titlinum í Newcastle Nottingham Forest í undanúrslit eftir vítaspyrnukeppni Alfons og Willum spiluðu báðir í stórsigri gegn botnliðinu Benoný fagnaði eftir fund með Bolt Sjáðu Eze senda Palace í undanúrslit Harry Redknapp kallaði Tuchel þýskan njósnara Gömul ummæli Bartons dregin fram: „Menn sem berja konur eru skíthælar“ Rekinn fyrir að vera í sambandi með leikmanni en vill annað tækifæri Barton dæmdur fyrir að ráðast á eiginkonu sína Sagður hafa samið við Real og fá 2,2 milljarða á ári „Ég veit að hann verður ekki með okkur á næsta tímabili“ Fær að snúa aftur um helgina með sérstaka grímu Kostar tæpar 900 milljónir að skila Sancho til Man. Utd Meiddur í fimmta sinn á tímabilinu Fékk styttra bann síðast en lengra bann núna Púllarinn dregur sig úr hópnum Frekar til í að borga himinháa sekt en að kaupa Sancho Sjá meira