Innlent

Horfðu til sótt­varna á líkams­ræktar­stöðvum við mat á hve margir fóru í sótt­kví

Birgir Olgeirsson skrifar
Talsverður munur var á hve margir fóru í sóttkví eftir líkamsræktarferð á Akranesi og í World Class. 
Talsverður munur var á hve margir fóru í sóttkví eftir líkamsræktarferð á Akranesi og í World Class.  Chase Kinney

Hjúkrunarfræðingur smitrakningateymisins segir að horfa verða til hvernig sóttvörnum er háttað þegar lagt er mat á það hve margir þurfa að fara í sóttkví. Þetta segir hjúkrunarfræðingurinn vegna tveggja atvika í líkamsræktarstöðvum þar sem smitaður einstaklingur hafði verið.

Annars vegar atvik þar sem smitaður einstaklingur fór í líkamsræktarsal á Akranesi fyrir viku. Setja þurfti 175 í sóttkví. Á föstudag reyndist smitaður einstaklingur hafa verið í líkamsræktartíma í World Class í Laugum. Vegna sóttvarna á stöðinni þótti smitrakningateyminu ekki ástæða til að senda starfsfólk eða iðkendur í sóttkví fyrir utan félaga sem áttu í samskiptum utan líkamsræktartímans.

„Við horfum til margra þátta,“ segir Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá smitrakningateyminu, spurð út í hvernig staðið er að mati á hversu margir þurfa að fara í sóttkví.

„Við horfum sérstaklega til þess hvernig sóttvörnum er háttað innan staðarins og hvort þeim sé fylgt eftir og svo framvegis,“ segir Þorbjörg.

Hún vildi ekki tjá sig um einstaka mál, en sagði þó að ef setja þyrfti marga í sóttkví vegna smits þá hafi ýmislegt vantað upp á varðandi sóttvarnir.

„Aðgengi að sprittbrúsum og slíku kannski ekki nægjanlegt. Kannski eru of margir á sama stað í of litlu rými, margir sameiginlegir snertifletir og ekki vel þrifið á milli einstaklinga og svo framvegis,“ segir Þorbjörg.

Hún segir smitrakningateymið einnig byggja mat sitt á samtali við rekstraraðila. „Við setjum fleiri í sóttkví ef okkur finnst eitthvað ábótavant. Við erum líka komin með ákveðna reynslu og þekkingu sem við horfum til.“

Hún segir samtölin við rekstraraðila hafa gengið vel. „Þeir skilja alveg tilganginn með þessu og vinna þetta verkefni með okkur af heilum hug.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×