Innlent

Sprengja fannst undir há­spennu­línum á Sand­skeiði

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Sprengjan fannst undir háspennulínum.
Sprengjan fannst undir háspennulínum. Landhelgisgæslan

Sprengikúla úr seinna stríði fannst undir háspennulínum á Sandskeiði í gær. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar færðu sprengikúluna og eyddu henni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á sjötta tímanum í gær að beiðni lögreglu vegna sprengikúlunnar, sem fannst við línuveg á Sandskeiði. Sprengikúlan lá undir þremur háspennulínum sem liggja til höfuðborgarsvæðisins.

Samstarf viðbragðsaðila gekk vel, að því er segir í tilkynningu.Landhelgisgæslan

Vegna staðsetningar sprengikúlunnar þótti öruggast að færa hana úr stað til að koma í veg fyrir tjón á háspennulínunum. Þegar virk sprengikúla er færð úr stað er mikilvægt að það sé gert af þrautþjálfuðum sprengjusérfræðingum sem hafa sérhæfðan búnað til verksins, að því er segir í tilkynningu.

Færa þurfti sprengjuna úr stað til að gæta fyllsta öryggis.Landhelgisgæslan

Óskað var eftir sjúkrabíl frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu af öryggisástæðum eins og alltaf er gert ef færa þarf sprengju. Sprengikúlan var færð á öruggan stað og sprengd. Fram kemur í tilkynningu Landhelgisgæslunnar að eyðing kúlunnar hafi gengið vel, sem og samstarf allra viðbragðsaðila.

Lagt á ráðin.Landhelgisgæslan



Fleiri fréttir

Sjá meira


×