Innlent

Mikil úr­koma fyrir austan og hætta á flóðum

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Neskaupstað. Myndin er úr safni.
Frá Neskaupstað. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Töluvert hefur rignt á Austfjörðum í nótt og má búast við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum. Gul viðvörun er í gildi fram á kvöld.

Á vef Veðurstofunnar segir að um klukkan sjö hafi tæpir 60 millimetrar mælst í Neskaupstað frá miðnætti. Er spáð allhvassri austlægri átt austantil á landinu og rigningu, en reiknað er með að stytti upp í kvöld.

Vatnavextirnir í ám og lækjum fyrir austan eykur hættuna á flóðum og skriðuföllum, sem geta valdið tjóni og raskað samgöngum. „Einnig er aukið álag á fráveitukerfi. Fólk er hvatt til að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. 

Annars staðar á landinu er gert ráð fyrir suðlægri eða breytilegri átt, skýjað á köflum og stöku skúrum.


Tengdar fréttir

Fljúgandi hálka á götum borgarinnar

Fljúgandi hálka er á götum borgarinnar nú í morgunsárið og því nauðsynlegt fyrir ökumenn og aðra vegfarendur að fara mjög varlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×