Lífið

Stefanía stal senunni með rappábreiðu

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Það var mikil stemmning í þriðja þættinum af Í kvöld er gigg sem var í dagskrár Stöðvar 2 í gærkvöldi. Gestir þáttarins voru rokkdívurnar Stefanía Svavars, Páll Róskinkranz og Stebbi Jak. 
Það var mikil stemmning í þriðja þættinum af Í kvöld er gigg sem var í dagskrár Stöðvar 2 í gærkvöldi. Gestir þáttarins voru rokkdívurnar Stefanía Svavars, Páll Róskinkranz og Stebbi Jak.  Skjáskot

Það var sannkölluð rokkstemmning hjá Ingó og félögum í síðasta þætti af Í kvöld er gigg sem sýndur var á Stöð 2 í gær. Gestir þáttarins voru að þessu sinni söngbomburnar Stefanía Svavars, Stebbi Jak og Páll Rósinkranz. 

Rokktríóið heillaði Ingó og gesti upp úr skónum og það er óhætt að segja að Stefanía hafi stolið senunni þegar hún brá sér úr rokkgallanum og flutti ábreiðu af hipp hopp smellinum Ready or Not þar sem hún söng og rappaði af mikilli innlifun.  

Hér fyrir neðan er hægt að sjá klippu af flutningi Stefaníu.

Klippa: Ready or Not - Stefanía Svavars syngur og rapppar lag Fugees

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast fyrstu þrjá þættina af Í kvöld er gigg inni á Stöð 2 maraþon.


Tengdar fréttir

Sjáðu magnaðan flutning Páls Óskars á laginu My Way

„Ég hef eiginlega aldrei verið í aðstöðu til að syngja þetta lag. Ég hef einu inni sungið þetta á æfingu og einu sinni í jarðarför,“ segir Páll Óskar áður en hann syngur lokalagið í öðrum þætti af Í kvöld er gigg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.