Innlent

Starfs­fólk ál­versins í Straums­vík ætlar í verk­fall

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Starfsfólk Álvers Rio Tinto greiddi atkvæði með verkfallsaðgerðum. 
Starfsfólk Álvers Rio Tinto greiddi atkvæði með verkfallsaðgerðum.  Vísir

Meirihluti starfsmanna Álversins í Straumsvík greiddi atkvæði með verkfallsaðgerðum en atkvæðagreiðslunni lauk um hádegi. Fyrstu verkfallsaðgerðirnar hefjast frá og með 16. október en um er að ræða aðgerðir þar sem ákveðnar starfsstéttir fara í dagleg verkföll út nóvember. 

Ef ekki verður samið fyrir þann tíma hefst allsherjarverkfall þann fyrsta desember. 

Reinhold Richter  trúnaðarmaður starfsfólks, sagði við fréttastofu í morgun að starfsfólk sem tilheyri fimm stéttarfélögum vilji fá sambærilegar hækkanir og hafi komið fram í lífskjarasamningi. Starfsfólk fari fram á 73 þúsund króna launahækkun líkt og aðrar stéttir. 

Meira verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 kl. 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×