Ungverjar mótherjar Íslands í úrslitaleiknum | Lars og lærisveinar úr leik Anton Ingi Leifsson skrifar 8. október 2020 22:58 Lars í stuði. Denis Doyle/Getty Images) Ísland mætir Ungverjalandi í úrslitaleiknum um laust sæti á EM 2020. Ungverjar unnu 3-1 sigur á Búlgaríu í kvöld. Ungverjarnir náðu forystunni á sautjándu mínútu og voru komnir í 2-0 er síðari hálfleikur var tveggja mínútna gamall. Þriðja markið kom svo stundarfjórðungi fyrir leikslok en Búlgaría klóraði í bakkann áður en yfir lauk og lokatölur 3-1. Ungverjaland og Ísland munu því mætast í Ungverjalandi þann 12. nóvember í úrslitaleik um sæti á EM næsta sumar. Fjórir af þeim sjö leikjum sem fóru í gang á sama tíma og leikur Íslands og Rúmeníu fóru í framlengingu og sumir hverjir í vító en það var framlengt á milli Noregs og Serbíu. Serbar komust yfir á 82. mínútu en Norðmenn jöfnuðu sex mínútum síðar. Í framlengingunni skoruðu Serbarnir svo sigurmarkið og Lars og lærisveinar því úr leik. Alla leiki kvöldsins í umspilinu fyrir EM má sjá hér að neðan. Úrslit kvöldsins: Georgia - Hvíta Rússland 1-0 Bosnía - Norður Írland 1-1 (Norður Írland áfram eftir vítaspyrnukeppni) Búlgaría - Ungverjaland 1-3 Ísland - Rúmenía 2-1 Norður Makedónía - Kósóvó 2-1 Noregur - Serbía 1-2 (Eftir framlengingu) Skotland - Ísrael 0-0 (Skotland áfram eftir vítaspyrnukeppni) Slóvakía - Írland 0-0 (Slóvakía áfram eftir vítaspyrnukeppni) SCOTLAND WIN! Scotland win their first ever penalty shootout!Kenny McLean slots the winner!They're a victory away from qualifying for Euro 2020.Serbia await...Reaction: https://t.co/olHaVn3MGO#bbcfootball #SCOISR pic.twitter.com/AEXdHRhSE7— BBC Sport (@BBCSport) October 8, 2020 EM 2020 í fótbolta
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti