Innlent

Sex greindust með veiruna í Akurskóla

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Akurskóli
Akurskóli Mynd/Já.is

Þrír nemendur í 7.-10. bekk Akurskóla í Reykjanesbæ greindust með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef skólans í dag. Smit innan Akurskóla eru því orðin sex en á mánudag greindust tveir starfsmenn og einn nemandi með veiruna.

Nemendurnir þrír voru allir í sóttkví við greiningu en fleiri starfsmenn og einhverjir nemendur þurfa þó að fara í sóttkví, að því er segir í tilkynningu. Öll kennsla í 7.-10. bekk  mun fara fram í gegnum tölvur eða snjalltæki á næstunni vegna þessa.

Í tilkynningu sem birt var á vef skólans eftir að smitin greindust á mánudag kom fram að um 100 nemendur og átta starfsmenn hafi þurft að fara í sóttkví. Þeim hefur nú fjölgað, líkt og áður segir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×