Þættirnir Rauðvín og klakar snúa aftur á Stöð 2 Esport klukkan 21 í kvöld en þar spilar Steinþór Hróar Steinþórsson tölvuleiki og drekkur eina rauðvínsflösku með.
Áhorfendur geta fylgst með í gegnum Stöð 2 Esport og einnig hér á Vísi og Twitch. Þættirnir verða framvegis á fimmtudagskvöldum.
Í kvöld er sérstakur hrekkjavökuþáttur. Gestir eru Dóri DNA, Hr. Hnetusmjör, Anna Svava, Sverrir Bergmann, Aron Mola, Donna Cruz og Floni.
Streymi Steinda og félaga á Twitch er stærsta íslenska leikjarstreymið landsins og lofa þeir félagar flugeldasýningu öll fimmtudagskvöld kl 21 í haust. Steindi hvetur fólk til þess að ekki bara fylgjast með heldur einnig að taka þátt í umræðunni í spjallinu við útsendinguna en þeir félagar spila í rauntíma.