Það er ekkert launungamál að Covid ástandið hefur áhrif á líf okkar allra á einhvern hátt. Allt er breytt, aftur. En hvernig áhrif ætli þetta breytta líf hafi á ástarsambönd?
Til að stuðla að almennri vellíðan þurfum við að sinna andlegri og líkamlegri heilsu. Við þurfum að rækta okkur. Við stundum líkamsrækt eða útiveru, hittum vinina, fáum stórfjölskylduna í mat, förum á stefnumót, förum á tónleika og svo má lengi telja.
Erfiðleikar geta í sumum tilvikum styrkt góð sambönd og fært okkur nær hvoru öðru. En í hve langan tíma? Flest pör og fjölskyldur hafa sjaldnast eytt eins miklum tíma innan veggja heimilisins eins og árið 2020. Sama mætti segja um pör en þau hafa sjaldnast eytt eins miklum tíma saman og 2020.
Meiri samvera er kannski það sem margir þurfa. Meiri tími með börnunum, meiri tími í núinu, meiri tími til að kynnast. En það getur líka verið álag. Álag þegar fólk getur kannski ekki ræktað sjálft sig eins og áður.
Þessa vikuna spyrja Makamál hvort að Covid ástandið hafi haft áhrif á samband þitt við maka.
Hægt er að svara hér fyrir neðan: