Lífið

Hvað eru keppendurnir úr Love Island að gera í dag?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Næsta þáttaröð af Love Island fer í loftið á næsta ári. Framleiða átti tvær seríur á þessu ári en þeim var frestað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. 
Næsta þáttaröð af Love Island fer í loftið á næsta ári. Framleiða átti tvær seríur á þessu ári en þeim var frestað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. 

Raunveruleikaþættirnir Love Island njóta mikilla vinsælda í Bretlandi og víða í Evrópu.

Um er að ræða breska stefnumótaþætti sem oftast eru teknir upp í villum á sólríkum stöðum.

Þátturinn er vinsælasta sjónvarpsefnið hjá ungu fólki á aldrinum 16-34 ára í Bretlandi og síðasta þáttaröð Love Island sló áhorfsmet.

Þrátt fyrir að raunveruleikaþátturinn hafi notið vinsælda hefur hann einnig verið harðlega gagnrýndur og áhorfendur látið í ljós áhyggjur sínar af sálarlífi þátttakenda og illri meðferð á þeim.

Undanfarin ár hafa keppendur bætt við sig mörg hundruð þúsund fylgjendum á Instagram eftir þátttöku þeirra í þáttunum og jafnvel milljónum fylgjenda.

 

En hvað eru vinsælustu keppendurnir að gera í dag? Í hlaðvarpinu Teboðið með Sunnevu Einarsdóttur og Birtu Líf Ólafsdóttur er farið vel yfir það.

Nú hafa verið framleiddar sex þáttaraðir af Love Island og fóru þeir vel yfir hvað sigurvegararnir sex eru að gera í dag. Max Morley, Jessica Hayes, Nathan Massey, Cara De La Hoyde, Kem Cetinay, Amber Davies, Jack Fincham, Dani Dyer, Amber Gill, Greg O'Shea og Paige Turley og Finn Tapp unnu öll keppnina. 

En felst pörin eru ekki par í dag. Cara og Nathan er í raun eina parið sem enn í par í dag. Fyrsta serían fór í loftið árið 2015 og þar mátti til að mynda reykja í mynd og drekka mun meira en í nýjustu þáttaröðunum. Það litaði seríuna mjög mikið og var mikil ölvun í villunni.

Hér að neðan má sjá umræðuna um helstu keppendur í þáttunum Love Island og hvað þeir eru að gera í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.