Innlent

Fimm sjúk­lingar og fimm starfs­menn Reykja­lundar með veiruna

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Fimm sjúklingar og fimm starfsmenn á Reykjalundi hafa greinst smitaðir af Covid-19.
Fimm sjúklingar og fimm starfsmenn á Reykjalundi hafa greinst smitaðir af Covid-19. Vísir/Vilhelm

Fimm sjúklingar og fimm starfsmenn á Reykjalundi hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni. Tveir starfsmenn Reykjalundar greindust í gær með veiruna og störfuðu þeir báðir á sólarhringsdeild Reykjalundar, Miðgarði.

Allir sjúklingar og hópur starfsmanna fóru samstundis í sóttkví að því er kemur fram í tilkynningu frá Reykjalundi og greindust fimm sjúklinganna smitaðir. Einn þeirra er með einkenni Covid-veikinda. Sjúklingarnir verða af öryggisástæðum sendir af Reykjalundi á Covid-göngudeild Landspítalans síðar í kvöld. Þrír starfsmenn til viðbótar greindust einnig.

Því hafa fimm sjúklingar og fimm starfsmenn á Reykjalundi greinst með veiruna undanfarna tvo sólarhringa. Þar að auki hafa 19 starfsmenn til viðbótar á Reykjalundi verið sendir í sóttkví auk þeirra sjúklinga sem verða eftir á deildinni Miðgarði.

Fram kemur i tilkynningunni að ekki sé ljóst hvaðan smitið barst á deildina.

„Við sjúklinga okkar og aðstandendur þeirra vil ég harma þau óþægindi sem þetta ástand og ráðstafanir því tengdu hafa í för með sér,“ skrifar Pétur Magnússon, forstjóri Reykjalundar í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Búið að taka sýni af öllum á Reykjalundi

Tveir starfsmenn Reykjalundar greindust með Covid19. Allir sextán sjúklingar deildarinnar eru komnir í sóttkví. Þeir munu að líkindum fá niðurstöður síðar í dag. 

Þrír sjúk­lingar til við­bótar hafa greinst á Landa­koti

Þrír sjúklingar til viðbótar hafa greinst smitaðir af Covid-19 á Landakoti við þá tuttugu og sex sem greindust í dag. Forstjóri Landspítalans segir stöðuna alvarlega en spítalann undirbúinn fyrir hópsýkingu af þessum toga.

Sjúk­lingur smitaður á Vogi

Sjúklingur á Vogi greindist smitaður af kórónuveirunni í dag. Þetta staðfestir yfirlæknir á Vogi í samtali við fréttastofu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×