Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag.
Alma Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi ásamt Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni.
Gestur fundarins verður Páll Matthíasson forstjóri Landspítala.
Fundurinn verður í beinni útsendingu hér á Vísi og Stöð 2 Vísi í sjónvarpinu. Þá verður textalýsing hér að neðan.
Uppfært: Hér má sjá upptöku af fundinum í heild sinni.