Ron­aldo snéri aftur með stæl

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ronaldo fagnar öðru marki sínu í dag.
Ronaldo fagnar öðru marki sínu í dag. Giuseppe Bellini/Getty Images

Cristiano Ronaldo hafði misst af síðustu leikjum Juventus vegna kórónuveirunnar en hann snéri aftur í dag og það með stæl.

Juventus hafði verið í vandræðum í síðustu leikjum og það var ljóst að þeir söknuðu Portúgalsans. Þeir höfðu gert þrjú jafntefli í síðustu fjórum leikjum í deildinni.

Þeir þurftu því sigur gegn Spezia í dag og það varð raunin. Lokatölur urðu 4-1 sigur Juventus. Alvaro Morata skoraði fyrsta markið á 14. mínútu áður en Spezia jafnaði.

1-1 var staðan í leikhlé en Ronaldo skoraði annað markið á 59. mínútu. Adrien Rabiot skorai þriðja markið á 68. mínútu og átta mínútum síðar skoraði Ronaldo fjórða markið úr vítaspyrnu.

Juventus er í öðru sæti deildarinnar með tólf stig en þeir eru fjórum stigum á eftir toppliði AC Milan.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira