Þórir Hákonarson, íþróttafulltrúi Þróttar, segir að það sé ákveðinn léttir að niðurstaða sé komin í hvað verður um Íslandsmótin og bikarkeppnina í knattspyrnu.
Stjórn KSÍ tilkynnti í dag að ekki yrðu Íslandsmótin kláruð og heldur ekki Mjólkurbikarinn. Þess í stað enda deildirnar eins og þær standa núna.
Þróttur var í harðri fallbaráttu í Lengjudeild karla og þrátt fyrir að vera í 5. sæti í Pepsi Max deild kvenna gátu þær enn fallið er tvær umferðir voru eftir.
„Auðvitað er þetta ákveðinn léttir. Þetta er léttir fyrir alla að fá niðurstöðu í þetta,“ sagði Þórir í samtali við Vísi í dag.
„Mér fannst röksemdir KSÍ sem komu fram í þessari frétt, mér fannst þær mjög góðar og halda vatni. Það er hundleiðinlegt að klára mótin svona en við verðum að horfa á það að samfélagið er í ákveðnu ástandi núna sem við verðum að sætta okkur við.“
Hann segir að í árferði eins og þessu, þá þurfi að taka erfiðar ákvarðanir. Hvort að blási hafi átt mótið af í síðasta stoppi vill Þórir sem minnst segja um en segir hins vegar að skoða þurfi allar þær ákvarðanir sem hingað til hafa verið teknar.
„Ég held að það séu flestir sammála um að það vildu flestir spila mótið til enda. Hugsanlega hefði á einhverjum tímapunkti verið hægt gera eitthvað öðruvísi en við verðum að horfa á stöðuna eins og hún er í dag. Mér fannst stjórnin gera það og færði fyrir því mjög góð og haldbær rök hvernig þeir tóku þessa niðurstöðu. Við erum í erfiðum aðstæðum og þá þarftu að taka erfiðar ákvarðanir.“
„Það er ekkert við stjórn KSÍ að sakast eða einhvern einn aðila. Við þurfum að reyna að læra að þessu. Þetta eru aðstæður sem við höfum ekki kynnst áður og enginn hefur kynnst þeim áður. Við þurfum að fara yfir það í rólegheitum, öll hreyfingin hvernig og hvort hún hefði getað gert betur á einhverjum tímapunkti. Það eru vinklar sem við þurfum að skoða.“
En hvert er framhaldið hjá Þrótti?
„Við þurfum að ná áttum. Ég er bæði að tala um karla- og kvennaliðið. Kvennaliðið var ekki í mikilli hættu þrátt fyrir að það hafi verið jöfn barátta. Við þurfum að gefa okkur smá tíma og skoða hvernig við getum endurskipulagt okkur og á hvaða leið við erum,“ sagði Þóri.