Hroða­legur varnar­leikur kostaði United sigurinn í Tyrk­landi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Demba Ba skorar fyrsta markið í kvöld.
Demba Ba skorar fyrsta markið í kvöld. Salih Zeki Fazlioglu/Anadolu Agency

Manchester United tapaði sínum fyrsta leik í H-riðli Meistaradeildar Evrópu er þeir ensku töpuðu 2-1 fyrir Instanbul Basaksehir á útivelli í kvöld.

Nokkrar breytingar voru gerðar á liði United. Dean Henderson fékk m.a. tækifæri í markinu og á miðjunni mátti finna Juan Mata og Donny van de Beek.

Demba Ba kom Tyrkjunum yfir á 13. mínútu. Eftir langa sendingu fram völlinn slapp Demba Ba einn í gegn frá miðjunni þar sem hann stóð aleinn og yfirgefinn. Nemanja Matic reyndi að ná Ba sem kláraði færið vel.

Staðan varð 2-0 á 40. mínútu. Deniz Turuc hirti boltann af Juan Mata og kom boltanum fyrir markið þar sem Edin Visca þrumaði boltanum framhjá Dean Henderson. Erfið staða United.

Þeir klóruðu þó í bakkann strax þremur mínútum síðar er Anthony Martial skoraði með frábærum skalla eftir fyrirgjöf Luke Shaw. Staðan 2-1 í hálfleik.

Gestirnir frá Englandi reyndu hvað þeir gátu til þess að jafna metin í síðari hálfleik en allt kom fyrir ekki og lokatölur 2-1 sigur Tyrkjanna. United er með sex stig og PSG, Leipzig og Istanbul þrjú. PSG og Leipzig mætast í kvöld.

Zenit og Lazio gerðu svo 1-1 jafntefli í F-riðlinum. Aleksandr Yerokhin kom Zenit yfir á 32. mínútu en Felipe Caicedo jafnaði fyrir Lazio á 82. mínútu. Lazio er með fimm stig, Club Bruge fjögur, Dortmund þrjú og Zenit eitt.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira