Lazio jafnaði á síðustu sekúndunni gegn Juve Arnar Geir Halldórsson skrifar 8. nóvember 2020 13:29 Ronaldo meiddist í dag. vísir/Getty Ítalíumeistarar Juventus heimsóttu Lazio í fyrri stórleik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn byrjaði vel fyrir gestina því Cristiano Ronaldo var á skotskónum strax á 15.mínútu þegar hann batt endahnútinn á góða sókn þar sem Juan Cuadrado fór mikinn. Ronaldo var áfram ógnandi og komst nokkrum sinnum nálægt því að tvöfalda forystuna. Ekki vildi þó boltinn aftur inn og haltraði Ronaldo af velli um stundarfjórðungi fyrir leikslok. Það stefndi í nauman sigur meistaranna en Felipe Caicedo jafnaði metin með síðustu spyrnu leiksins við mikinn fögnuð heimamanna. Fjórða jafntefli Juventus í fyrstu sjö umferðunum og sitja meistararnir í þriðja sæti deildarinnar, með þremur stigum minna en topplið AC Milan sem á leik til góða. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti