Lífið

Björgvin fékk þá umsögn að hann væri barn sem væri erfitt að elska

Stefán Árni Pálsson skrifar
Björgvin Páll tekur þátt í herferðinni.
Björgvin Páll tekur þátt í herferðinni.

„Það sem ég myndi vilja segja við ungan mig er, andaðu, slakaðu á og þetta verður allt í lagi,“ segir Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmaður í handbolta í nýrri herferð SÍBS sem hófst í dag. Í herferðinni koma þekktir Íslendingar fram og ráðleggja ungu fólki.

„Ég er strákurinn sem að beit kennarinn minn í fyrsta bekk, tekinn með hníf í skólanum í þriðja bekk, lagður inn á barna og unglingageðdeild og ég er líka strákurinn sem fékk þá umsögn í sveit að ég væri barn sem væri erfitt að elska og ef ég ætti að gefa sjálfum mér einhver ráð, ungum mér, þá væri það að slaka á, anda hægt og rólega og átta mig á því að það eru allir að reyna gera sitt besta og það eru allir einhvern veginn út af einhverju.“

Hér að neðan má sjá myndbrotið af Björgvini.

Klippa: Björgvin fékk þá umsögn að hann væri barn sem væri erfitt að elska

Í herferðinni er einnig rætt við leikarann Þröst Leó sem eignaðist sitt fyrsta barn nítján ára gamall. Þá hófst kapphlaupið og hann hefur ekki hætt að hlaupa síðan þá. Ef hann ætti að ráðleggja yngri sér eitthvað væri það að slaka aðeins á og njóta augnabliksins.

Í auglýsingunni er notast við nýja tækni þar sem teknar eru gamlar myndir af Þresti og þær keyrðar í gegnum tölvuforrit og inn í auglýsinguna. Fyrir vikið þá yngist Þröstur Leó eftir því sem líður á auglýsinguna og er eins og hann var 19 ára þegar auglýsingin klárast. Þetta er sama aðferð og var notuð í The Irishman og fleiri kvikmyndum. Auglýsingin er tekin upp í gamla St. Jósepsspítala í Hafnarfirði. Allir veggir og annað, sem er heldur illa farið, breytast líka á meðan þessu stendur og verða fallegri eftir því sem líður á auglýsinguna.

Klippa: Þröstur Leó yngist upp með hverri sekúndunni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.