Bílar

Nissan LEAF áreiðanlegasti notaði rafbíllinn í Bretlandi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nissan Leaf, árgerð 2017.
Nissan Leaf, árgerð 2017.

Rafbíllinn Nissan LEAF var á dögunum útnefndur áreiðanlegasti notaði rafbíllinn á breska markaðnum af tryggingafélaginu Warrantywise í Bretlandi sem sérhæfir sig í sölu framhaldsábyrgða á bílum eftir að framleiðsluábyrgð þeirra lýkur.

Útnefningin kemur í kjölfar samanburðarrannsóknar sem fyrirtækið gerði á mismunandi tegundum notaðra rafbíla þar í landi auk notaðra bensín- og dísilbíla. Að því er segir í fréttatilkynningu frá BL. Leaf kom einnig betur út í samanburði við margar tegundir bíla með sprengihreyfli.

Meðal þátta sem Warrantywise skoðaði var tíðni viðgerða á verkstæði, algengar bilanir, kostnaður við viðgerðir og aldur bílsins þegar viðgerðir fóru fram. Í öllum tilfellum urðu bílarnir að vera að minnsta kosti þriggja ára. Samhliða var áreiðanleiki fólksbíla með sprengihreyfli kannaður og var Leaf sá sjöundi áreiðanlegasti í samanburði við þær tegundir sem kannaðar voru í þeim flokki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×