Lífið

Innlit í lúxusíbúðirnar við Austurhöfn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Milljón krónur á fermetrann við Austurhöfn.
Milljón krónur á fermetrann við Austurhöfn.

„Þetta umrædda hús er fjölbýlishús sem samanstendur af sjötíu íbúðum og þar af eru fjórar penthouse íbúðir sem er svolítið stórar og tilbúnar til innréttingar,“ segir Sveinn Björnsson, framkvæmdarstjóri íslenskra fasteign, í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær. Í þættinum var farið yfir íbúðirnar við Austurhöfn, nánar tiltekið við Geirsgötu. Þar kosta íbúðirnar mest um 200 milljónir.

Á vefsíðu Austurhafnar er búið að birta verðlista yfir þær íbúðir sem eru til sölu. Dýrasta íbúðin er á fimmtu hæð og kostar hún 345 milljónir. Sú eign er 211 fermetrar og með sjávarútsýni. Athygli vekur að enn stærri íbúðir verða á sjöttu hæð og á eftir að verðleggja þær. Verðið á þeim ætti því að verða mun hærra. Fjölmargar íbúðir eru verðlagðar á rúmlega tvö hundruð milljónir og einnig á bilinu 100-200 milljónir. Ódýrasta eignin er 59 milljónir og er hún fimmtíu fermetrar að stærð.

Almennt er fermetrinn á eina milljón króna við Austurhöfn. Sveinn segir að gangurinn í sölunni endurspeglist í raun á árferðinu í dag.

„Við erum í miðju Covid og sjáum hvernig þetta þróast allt saman,“ segir Sveinn sem fór vel og vandlega í gegnum um 160 fermetra íbúð á svæðinu með Sindra Sindrasyni í þættinum í gær.

Í þeirri íbúð voru allar innréttingar til staðar og pælt í hverju smáatriði.

„Við erum líka að selja upplifunina að vera á þessum stað, að vera nálægt Hörpunni og þú ert nálægt allri menningarstarfsemi sem er hér í kring. Hérna verður mjög gaman að vera, ég er algjörlega sannfærður um það. Svo ert þú með útsýni yfir lifandi höfn sem er algjörlega einstakt,“ segir Sveinn en í þessari íbúð gengur maður beint inn í íbúðina úr lyftunni.

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.