Málum KR og Fram gegn stjórn KSÍ vísað frá Sindri Sverrisson skrifar 16. nóvember 2020 12:03 KR-ingar voru komnir í undanúrslit bikarkeppninnar og einu sæti frá Evrópusæti í Pepsi Max-deildinni. vísir/hulda margrét
Aga- og úrskurðanefnd KSÍ hefur vísað frá málum KR og Fram sem kærðu stjórn KSÍ vegna ákvarðana varðandi lok Íslandsmótsins í fótbolta. KR -ingar kröfðust þess að ákvörðun stjórnar KSÍ frá 30. október um að hætta keppni í Íslandsmótum og bikarkeppnum yrði felld úr gildi. Karlalið KR átti áður enn möguleika á að komast í Evrópukeppni, bæði í gegnum deild og bikar, og kvennalið KR átti enn möguleika á að halda sér í efstu deild. Framarar voru í harðri baráttu um að komast upp í úrvalsdeild eftir langa bið, þegar keppni var blásin af.vísir/hag Framarar kröfðust þess að sú ákvörðun stjórnar KSÍ að Leiknir R. fengi sæti í úrvalsdeild yrði ógilt, og að viðurkennt yrði að Fram og Leiknir hefðu verið jöfn þegar mótið var blásið af, samkvæmt sérstakri Covid-reglugerð sem stjórnin samþykkti í sumar. Í þeirri reglugerð var ekki tekið á því ef lið væru jöfn að stigum og mótið blásið af áður en öllum leikjum væri lokið, en Leiknir var með betri markatölu en Fram. Aga- og úrskurðarnefnd vísaði báðum málum frá á þeim forsendum að ekki væri gert ráð fyrir því að ákvarðanir sem teknar væru af KSÍ sættu kæru til aga- og úrskurðanefndar nema sérstök heimild væri til þess í lögum og reglugerðum KSÍ. KSÍ gæti ekki verið varnaraðili málsins. KR og Fram hafa nú þrjá daga til að áfrýja málum sínum til áfrýjunardómstóls KSÍ, kjósi þau svo. Úrskurður vegna máls KR gegn KSÍ. Úrskurður vegna máls Fram gegn KSÍ.
KSÍ Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna KR Fram Mest lesið Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Fótbolti „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn Uppgjörið: Njarðvík 84-75 Stjarnan | Njarðvík tekur foyrsuna í kaflaskiptum leik Körfubolti Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Enski boltinn „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Körfubolti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Enski boltinn „Þetta var alveg orðið smá stressandi“ Sport Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu Fótbolti „Verðum að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum“ Körfubolti Fleiri fréttir Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ „Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni „Gerðum gott úr þessu“ Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1 | Breiðablik er meistari meistaranna Herra Víkingur kvaddur: „Rosalega gott tækifæri til að hætta“ Skelfileg meiðsli Stefáns Árna: „Fóturinn var í mjög ljótri stöðu“ Frumraun Gylfa í beinni í kvöld „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari „Mjög krefjandi tímabil framundan“ „Lærir með hverju árinu hvað maður á að hlusta á og hvað ekki“ Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Nýi markvörður KA kom snemma inn af bekknum í fyrsta leik Ísabella Sara sögð á leið til Rosengård Besta auglýsing Aftureldingar: „Þetta er enginn helvítis Pizzabær“ „Veturinn eins og best verður á kosið“ Sjá meira