Innlent

Yfirjólasveinninn vill að sem flestir baki fyrir jólin

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Benedikt Ingi Grétarsson, yfirjólasveinn.
Benedikt Ingi Grétarsson, yfirjólasveinn. Vísir/Tryggvi

Yfirjólasveinninn í jólagarðinum í Eyjafjarðarsveit hvetur landsmenn alla til þess að spreyta sig á smákökubakstri fyrir þessi jól.

Það styttist í jólin og eru jólaþyrstir gestir jólagarðsins farnir að næla sér í jólavörur, þrátt fyrir að kórónuveirutakmarkanir gildi þar eins og annars staðar. Ýtrustu reglum er fylgt, en á jólalegan hátt.

„Í jólagarðinum sjálfum erum við með snjókorn sem við biðjum fólk að taka þegar það kemur inn. Það hanga bara tíu úti og það gefur auga leið þegar þau eru öll farin af snaganum þá má ekki hleypa fleirum inn í bili. Svo sótthreinsum við kornin og setjum fram þegar einhver gestur fer, þannig höldum við þessum tíu inni,“ segir Benedikt Ingi Grétarsson, yfirjólasveinn.

Jólagarðurinn var kominn í jólabúninginn þegar fréttamaður leit á svæðið, eins og sjá má í myndbandinu hér að ofan.

„Þetta er svona pínulítið póstkort. Og þá er ekki annað en að biðja fólkið um að koma út, staldra smástund við og njóta þess að vera stödd í póstkortinu,“ segir Benedikt.

Og þessi jólin ætlar fjölskylda Benedikts að skreyta eigið heimili og baka langt á undan áætlun, hann hvetur landsmenn til þess að gera slíkt hið sama

„Við vonumst til þess að það verði svo mikið að gera í desember að við ætlum núna eftir helgina áður en lokaspretturinn hefst og fara heim og skreyta sjálf og gera smákökur. Nú hvet ég bara alla sem hafa áhuga og ekki áhuga að fara í smákökubakstur, það er tími til þess núna. Það ætlar enginn vera að sperra sig neitt. Bara heim og baka, það geta allir bakað og ef það mistökst þá bara byrja aftur, ekkert vesen.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×