Lífið

Stjörnulífið: Þyrluferð og edrú í fjögur ár

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alltaf stuð hjá störnunum á Instagram. 
Alltaf stuð hjá störnunum á Instagram. 

Stjörnulífið þessa helgina heldur áfram að litast af hertum takmörkunum sem tóku gildi á landinu fyrir nokkrum vikum en mögulega verður hægt að aflétta þeim á næstunni.

Fólk er heilt yfir lítið á faraldsfæti og þurftu að nota ímyndunaraflið til að skemmta sér vel á þessum einkennilegum tímum en nú styttist óðum í aðventuna og virðast Íslendingar almennt komnir í jólagírinn.

Söngkonan Jóhanna Guðrún fór mikinn hjá Helga Björns á laugardagskvöldið og sló í gegn. „Það var sjúklega gaman hjá Helga í gær. Takk fyrir mig,“ skrifaði hún með mynd á Instagram. 

 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra knúsaði hund. 

Svala Björgvins er greinilega ástfangin uppfyrir haus. 

Birgitta Líf Björnsdóttir skellti sér í þyrluferð upp á hálendið. 

Feðgarnir Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson og Vilhjálmur Hans eldri skelltu sér í gönguferð á höfninni í Reykjavík. 

Bríet Elfar tók lagið í Vikunni hjá Gísla Marteini á föstudaginn og var flutningurinn heljarinnar sýning. „Ég er ennþá að ná utanum allt þetta hæfileikaríka fólk i kringum mig,“ skrifaði Bríet og birti í leiðinni myndbandið. 

Ásdís Rán birti fallega mynd af sér og skrifaði við myndin: „Elegant er tímalaust.“

Eva Laufey ætlaði að birta rosalega fallega sjálfu af sér til að kynna jólamatreiðsluþáttinn sem hún fer af stað með á Stöð 2 á næstunni en ákvað að birta mynd sem hún tók óvart. 

Stjörnubloggarinn Elísabet Gunnars virðist elska þennan árstíma. 

„Þessi tími ársins - heitt kakó og fjölskyldustundir,“ skrifar hún með myndunum sem hún birti á Instagram. 

Salka Sól er þakklát fyrir viðtökurnar á nýju prjónabókinni. 

Herra Hnetusmjör hefur verið edrú í fjögur ár og fagnaði þeim tímamótum með geggjaðri mynd. 

Áhrifavaldurinn Sunneva Einars birti þrjár skvísumyndir á Instagram. 

 Róbert Wessmann rifjar upp góðar stundir. 

 María Birta birti fallegar myndir á miðlinum .

Svali kíkti í heimsókn til vínbónda á Tenerife. 

Katrín Tanja hefur það gott hér á landi með litlu frænku sinni. 

Björn Ingi Hrafnsson hjá Viljanum skellti sér í hádegismat til litla bróður síns og mágkonu. 

 Camilla Rut sýnir hvernig hægt er að klæða sig í leggingsbuxur á sex mismunandi vegu.

Simmi Vill komst loksins í klippingu.

Emmsjé Gauti og Salka Sól hittust með krakkana á göngu í Vesturbænum og þau voru í stíl. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.