Jólaboð Evu: Graflax, lambarifjur, kartöflugratín og eftirréttir Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 30. nóvember 2020 12:01 Í fyrsta þætti af Jólaboð með Evu fengu áhorfendur meðal annars að sjá Evu Laufey bera fram graflax, lamb og Ris a la Mande. Stöð 2 Þættirnir Jólaboð með Evu fóru af stað um helgina og verða sýndir alla sunnudaga fram að jólum. Í þáttunum gefur Eva Laufey Kjaran góðar hugmyndir fyrir mat og bakstur yfir hátíðarnar. Allar uppskriftirnar má finna hér í fréttinni.
Í fyrsta þætti útbjó Eva Laufey graflax og graflaxsósu í forrétt. Fyrir aðalréttin eldaði hún lambarifjur með öllu tilheyrandi, kartöflugratín og rauðvínssósu. Í eftirrétt varð hinn klassíski Ris a la Mande fyrir valinu. Auk þess bakaði hún rjómaostatoppa og gaf hugmynd að súkkulaðipinnum sem eru frábær gjöf á aðventunni. Eva Laufey fór af stað með nýja þætti í gær.Stöð 2 Forréttur Graflax ·800 g lax, beinlaus ·200 g gróft salt ·200 g sykur ·8 piparkorn ·2 msk vatn ·1 búnt dill ·½ sítróna Aðferð: Setjið sykur, salt, piparkorn, vatn og handfylli af dilli í matvinnsluvél og maukið fínt. Leggið laxaflakið í eldfast mót eða beint í plastfilmu, roðhliðin snýr niður. Stráið saltblöndunni jafnt yfir fiskinn og saxið restina af dillinu og setjið ofan á. Gott er að rífa börk af hálfri sítrónu og setja yfir í lokin. Pakkið laxinum vel inn í plastfilmu eða setjið plastfilmu yfir eldfasta mótið. Setjið eitthvað þungt ofan á til dæmis mjólkurfernu og geymið laxinn í kæli í 24 – 48 klst. Skolið laxinn með köldu vatni eftir þann tíma og þerrið aðeins áður en þið berið hann fram með fersku dilli og ljúffengri sósu. Graflaxsósa 1 dós sýrður rjómi 36% 2 msk Dijon sinnep 1 msk hlynsíróp handfylli ferskt dill Salt og pipar 1 msk sítrónusafi Aðferð: Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Smakkið ykkur gjarnan til og bragðbætið að vild. Best er að geyma sósuna í kæli í 30 mínútur áður en hún er borin fram. Forrétturinn var graflaxStöð 2 Aðalréttur Lambarifjur með öllu tilheyrandi 1 kg lambarifjur Salt og pipar 2 msk smjör 2 msk dijon sinnep Handfylli steinselja 2 msk saxað timían 2 msk saxað rósmarín 1 hvítlauksrif 1 ½dl brauðrasp 1 msk ólífuolía Aðferð: Útbúið kryddhjúpinn með því að setja steinselju, timían, rósmarín, hvítlauksrif, brauðrasp og ólífuolíu í matvinnsluvél og maukið vel. Skolið og þerrið lambakjötið, kryddið með salti og pipar og nuddið upp úr olíu. Steikið á öllum hliðum þar til kjötið hefur brúnast vel, bætið smjöri út á pönnuna og hellið duglega yfir kjötið á meðan þið steikið kjötið. Færið kjötið af pönnunni, penslið kjötið með dijon sinnepi og veltið því næst upp úr kryddhjúpnum. Því næst fer kjötið inn í ofn við 200°C í 30 – 35 mínútur. Leyfið kjötinu að hvíla í 7- 10 mínútur áður en þið berið það fram. Klippa: Jólaboð Evu - Aðalréttur - Lambarifjur með öllu tilheyrandi Kartöflugratín 1 kg bökunarkartöflur 2 hvítlauksrif 1 msk smjör Salt og pipar Ferskt timían ½ - 1 tsk nýmöluð múskathneta 1 kjúklingateningur 150 g gratínostur 150 g rifinn Tindur 500 ml rjómi Aðferð: Flysjið kartöflurnar og skerið þunnt. Smyrjið eldfast form með smjöri, rífið niður hvítlauk og nuddið hvítlauknum í formið. Raðið kartöflunum í eldfast móti, saltið og piprið á milli laga auk þess sem þið sáldrið fersku timían yfir og rífið smávegis af múskathnetu. Myljið kjúklingateninginn yfir og sáldrið smávegis af ostinum á milli laga og endurtakið leikinn þar til að þið eruð komin með lagskipt gratín. Hellið rjómanum yfir gratínið og bakið við 180°C í 50 – 55 mínútur, leyfið gratíninu að standa í smá stund áður en þið berið það fram. Rauðvínssósa Ólífuolía 1 laukur 2 gulrætur 5 sveppir 1 stk anísstjarna 8 piparkorn 4 dl nautasoð 3 dl rauðvín 100 g smjör Aðferð: Skerið lauk, sveppi og gulrætur í litla bita, steikið upp úr olíu í smá stund. Bætið anísstjörnu, piparkornum, rauðvíni og nautasoði út í pottinn og sjóðið þar til það eru ca. 2 dl eftir og takið soðið af hitanum, sigtið sósuna og bætið því næst smjörinu saman við í nokkrum pörtum. Berið sósuna strax fram. Lambaréttur Evu.Stöð 2 Eftirréttur Ris a la Mande Grauturinn - Uppskrift 2 ½ dl grautargrjón 1 L nýmjólk Fræin úr einni vanillustöng Salt á hnífsoddi 70 g hvítt súkkulaði Aðferð: Penslið pott með smá smjöri en það kemur í veg fyrir að grjónin og mjólkin brenni við. Hellið mjólkinni í pottinn og leyfið suðunni að koma upp, bætið þá grjónunum út í pottinn og hrærið vel í. Kljúfið vanillustöngina í tvennt, skafið fræin innan úr og setjið í pottinn. Sjóðið grautinn við vægan hita í 35 – 40 mínútur. Hrærið af og til í pottinum, það er mjög auðvelt að brenna grautinn við og þess vegna þarf að fylgjast vel með. Þegar grauturinn er tilbúinn bætið þið smátt söxuðu hvítu súkkulaði saman við og hrærið, súkkulaðið bráðnar í grautnum og gefur honum einstaklega fallega áferð. Kælið grautinn mjög vel áður en þið útbúið Ris a la Mande. Best er að gera grautinn deginum áður og þá kólnar hann í rólegheitum yfir nótt. Ris a la Mande 1 skammtur grautur (uppskriftin hér að ofan) 500 ml rjómi 2 msk flórsykur 100 g möndlur, hakkaðar og ristaðar Góð sósa, til dæmis söltuð karamellusósa eða kirsuberjasósa Aðferð: Þeytið rjóma og bætið flórsykrinum saman við. Blandið rjómablöndunni saman við grautinn með sleikju. Hakkið möndlur, ristið þær og kælið. Þegar þær eru kaldar þá bætið þið þeim við grautinn, mér finnst ágætt að setja 70% í grautinn en geyma 30% af möndlunum til skrauts. Hellið nú grautnum í fallega skál eða skálar. Hellið góðri sósu yfir og sáldrið ristuðum möndluflögum yfir áður en þið berið eftirréttinn fram. Eftirréttur sem klikkar ekki.Stöð 2 Bakstur Rjómaostatoppar með hvítu súkkulaði 220 g smjör 200 g hreinn rjómaostur 225 g púðursykur 225 g sykur 2 egg 2 tsk vanillusykur 600 g hveiti ½ tsk salt 3 tsk kanill 1 tsk lyftiduft 4 msk mjólk 100 g hvítt súkkulaði Til að rúlla deiginu í: 100 g sykur 2 tsk kanill Aðferð: Hitið ofninn í 180°C. Hrærið smjöri, rjómaosti og sykri saman þar til blandan verður kremkennd. Bætið eggjum út í, einu í einu og hrærið vel á milli. Setjið þurrefnin saman við deigið og hrærið vel. Hellið mjólkinni út í deigið í nokkrum skömmtum. Kælið deigið í 30 mínútur eða lengur. Mótið litlar kúlur með teskeiðum, rúllið upp úr kanilsykri og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Bakið við 180°C (blástur) í 13 – 15 mínútur. Bræðið hvítt súkkulaði og hellið yfir kökurnar í lokin. Rjómaostatoppar með hvítu súkkulaðiStöð 2 Jólamatargjöf Súkkulaðipinnar 300 g suðusúkkulaði 1 msk kókosolía Skraut að eigin vali, til dæmis bismark brjóstsykur, sykurpúðar og jólastafir. Pinnar, ég notaði kökupinna Aðferð: Bræðið súkkulaði og kókosolíu saman í potti við vægan hita. Hellið súkkulaðinu í til dæmis bollakökuform, skreytið með sælgæti og setjið pinna ofan í. Kælið mjög vel þar til súkkulaðið er orðið stíft. Hitið mjólk, setjið einn pinna ofan í bolla og fyllið upp með heitri mjólk. Hrærið stöðugt í og þá eruð þið komin með ljúffengan bolla af heitu súkkulaði. Frábær gjöf! Súkkulaðipinnarnir eru fallegir á borðið og sem gjöf.Stöð 2
Jól Eva Laufey Uppskriftir Lambakjöt Lax Eftirréttir Risalamande Mest lesið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Tónlist Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Lífið Fékk bónorð í jólagjöf á tónleikum Paul McCartney Lífið